Læknar sem sækja um lyfjaskírteini
25. maí 2026
Sjúkratryggingar kynna væntanlegar breytingar á umsóknarferli lyfjaskírteina

Núverandi umsóknarform byggir að stórum hluta á frjálsum texta. Til að auka skilvirkni mun umsóknarferlið breytast á næstunni og verða sett upp sem staðlað rafrænt eyðublað með fyrir fram skilgreindum reitum sem læknar fylla út. Nýja umsóknarformið byggir fyrst og fremst á því að læknar staðfesti að skilyrði fyrir greiðsluþátttöku séu uppfyllt, enda verða skilyrðin tilgreind í umsóknarforminu. Þegar umsókn er send fær læknir samstundis tilkynningu hvort umsóknin hafi verið sjálfvirkt samþykkt eða hvort hún fari í nánari skoðun hjá Sjúkratryggingum.
Ekki verður krafist þess að læknar sendi Sjúkratryggingum sjúkrasögu sjúklings. Sjúkratryggingar hafa þó heimild til að óska eftir gögnum frá lækni til að staðfesta að þær upplýsingar sem fram koma í umsókn um lyfjaskírteini séu réttar.
Við viljum vekja athygli á því að einhverjir hnökrar gætu komið upp í innleiðingu á nýja umsóknarforminu en hvetjum lækna til að prófa það óhikað þrátt fyrir möguleg villuskilaboð.
Markmið með breytingunni er að einfalda umsóknarferlið, tryggja að nauðsynlegar upplýsingar berist frá læknum með skýrum og samræmdum hætti, sem og að stuðla að sjálfvirkri afgreiðslu umsókna.
