Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Heilindadagur Sjúkratrygginga

22. maí 2026

Heilindi í forgrunni

Á hverju ári fara um 300 milljarðar króna í gegnum Sjúkratryggingar og stofnunin vinnur með afar viðkvæmar persónuupplýsingar. Starfsemi stofnunarinnar snýr að mikilvægum almannahagsmunum og meðferð almannafjár og því skiptir miklu máli að tryggja traust, gagnsæi og ábyrg vinnubrögð á öllum sviðum starfseminnar.

Undanfarin misseri hafa Sjúkratryggingar lagt aukna áherslu á áhættustýringu, öryggi og gæði í starfseminni. Unnið er að kerfisbundinni nálgun í tengslum við áhættustýringu, gæðamál, eftirlit og upplýsingaöryggi. Innleitt hefur verið verklag um heilindi og upplýsingaöryggi, hagsmunaárekstrastefna og rafrænt atvikaskráningarkerfi.

Áhersla er lögð á að heilindi og öryggi snúist ekki eingöngu um reglur eða tæknilausnir heldur fyrst og fremst um fólk. Því er mikilvægt að efla öryggisvitund starfsfólks og tryggja að allir séu sterkir hlekkir í öryggiskeðjunni. Sjúkratryggingar sjá mikil tækifæri í áframhaldandi þróun og umbótum. Sjúkratryggingar vilja jafnframt vera fyrirmynd fyrir aðrar stofnanir og fyrirtæki þegar kemur að heilindum, góðri stjórnsýslu og ábyrgum vinnubrögðum og miðla áfram þeirri þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp innan stofnunarinnar.

Í því samhengi héldu Sjúkratryggingar í fyrsta sinn sérstakan Heilindadag þar sem starfsfólk kom saman til fræðslu, umræðu og skemmtilegra viðburða með áherslu á heilindi, upplýsingaöryggi, persónuvernd og góða vinnustaðamenningu.

Sjúkratryggingar hafa þá sýn að vera hornsteinn í íslenskri heilbrigðisþjónustu – frá öllum fyrir öll.

Þær Katrín Loftsdóttir, áhættustjóri, og Halla Halldórsdóttir, öryggis- og gæðastjóri mættu í síðdegisútvarp Rásar 2.

Þær Katrín Loftsdóttir, áhættustjóri, og Halla Halldórsdóttir, öryggis- og gæðastjóri mættu í síðdegisútvarp Rásar 2.

Þar sögðu þær frá Heilindadegi Sjúkratrygginga og verkefnum stofnunarinnar.

Hér má hlusta á viðtalið:

Útvarp - Spilari RÚV