Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Sjúklingatrygging- auglýsing eftir áhugasömum sérfræðilæknum

7. maí 2026

Sjúkratryggingar óska eftir samstarfi við áhugasama sérfræðilækna sem vilja taka að sér ráðgjafastörf í verktöku við fagteymi stofnunarinnar vegna umsókna um bótagreiðslur tengt atvikum í heilbrigðisþjónustu (sjúklingatrygging).

Óskað er sérstaklega eftir sérfræðingum í fæðinga- og kvenlækningum, geðlækningum og augnlækningum en við hvetjum áhugasama sérfræðilækna í öllum sérgreinum til að senda okkur umsókn.

Verkefnið er tvíþætt og felst annars vegar í því að fara yfir læknisfræðileg gögn vegna umsókna einstaklinga um bætur og hins vegar að vera fagteymi Sjúkratrygginga til ráðgjafar um bótarétt samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu. Helstu skilyrði bótaréttar eru að líkamstjón megi rekja til þess að læknismeðferð hafi ekki verið hagað eins vel og unnt var eða að einstaklingur hafi orðið fyrir alvarlegum og sjaldgæfum fylgikvilla meðferðar. Ekki er um hefðbundin matsstörf að ræða heldur er eingöngu um að ræða yfirferð sjúkragagna frá umsækjendum og meðferðaraðilum og ritun sérfræðiálits út frá þeirri yfirferð.

Sóst er eftir sérfræðilæknum sem hafa nokkra starfsreynslu en eru jafnframt enn við klínísk störf. Þó kemur til greina að ganga til samninga við sérfræðinga sem hafa nýlega hætt klínískum störfum. Ekki er skilyrði að viðkomandi starfi hérlendis. Umfang vinnu er samkvæmt nánara samkomulagi og býður upp á sveigjanleika.

Áhugasamir sendi stutt yfirlit yfir starfsferil ásamt sérfræðiviðurkenningu, ef hún liggur ekki fyrir hjá Sjúkratryggingum, á netfangið innkaup@sjukra.is fyrir 30. maí 2026. Sjúkratryggingar áskilja sér rétt til að velja úr þeim hópi, sem lýsir áhuga, eftir þörfum.

Nánari upplýsingar veitir:

María Hrafnsdóttir yfirlæknir Sjúkratrygginga (maria.hrafnsdottir@sjukra.is)