Mikilvægar ábendingar vegna læknisaðstoðar á ferðalögum erlendis
30. apríl 2026
Sjúkratryggingar vilja minna á mikilvægar upplýsingar um réttindi sjúkratryggðra einstaklinga á ferðalögum

Undanfarið hefur verið fjallað í fjölmiðlum um tilvik þar sem íslenskir ferðamenn hafa orðið fyrir fjárhagslegum skaða eftir að hafa leitað sér læknisaðstoðar erlendis. Í sumum tilvikum kann kostnaður að hafa fallið á einstaklinga þar sem Evrópska sjúkratryggingakortið var ekki framvísað. Í öðrum tilvikum hefur verið leitað til heilbrigðisþjónustu sem ES‑kortið tekur ekki til. Af þessu tilefni vilja Sjúkratryggingar minna á mikilvægar upplýsingar um réttindi sjúkratryggðra einstaklinga á ferðalögum.
Evrópska sjúkratryggingakortið
Evrópska sjúkratryggingakortið veitir rétt til nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu á ferðalögum innan EES, Bretlands og Sviss, að því tilskildu að þjónustan sé veitt hjá opinberum eða samningsbundnum heilbrigðisstofnunum. Nánari upplýsingar og umsókn um kortið má finna hér.
Á sömu síðu eru einnig skýrar upplýsingar um hvar kortið gildir og hvar ekki, hvaða þjónusta fellur ekki undir kortið og hverju skal huga að ef slys eða veikindi eiga sér stað utan EES.
Í neyðartilvikum ber ávallt að hafa samband við neyðarnúmer viðkomandi lands (112 innan Evrópu).
