Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Opnað hefur verið fyrir útboð Sjúkratrygginga á rammasamningi á Bað- og salernishjálpartækjum

20. mars 2026

Fjársýslan fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands, óskar eftir tilboðum í útboði á rammasamningi nr. 23310 á Bað- og salernishjálpartækjum.

Um er að ræða útboð á bað- og salernishjálpartækjum og stoðum fyrir börn og fullorðna, þ.e. salernisstóla með/án hjóla, salernissæti og salernisupphækkanir ásamt bað- og sturtustólum með/án hjóla, sturtu- og skiptiborðum og stoðum (sjá Viðauka 1 – Kröfulýsing).

Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli útboðs þessa, þar sem rammasamningar eru gerðir um tiltekna vöruflokka í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar. Þetta orsakast af því hvernig hópur skjólstæðinga Sjúkratrygginga er samsettur á hverjum tíma og þörf þeirra á væntanlegum samningstíma, sbr. 14. gr. í samningsdrögum.

Skilafrestur

13.04.2026 kl. 12:00

Opnun tilboða:

13.04.2026 kl. 13:00

Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi Fjársýslunnar, TendSign.is.

Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið er að finna á heimasíðu Fjársýslunnar.