Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Breytingar á umsýslu hjálpartækja til að stytta biðtíma

20. mars 2026

Breytingar á umsýslu hjálpartækja til að bæta þjónustu, stytta biðtíma og auka skilvirkni í afgreiðslu umsókna.

Sjúkratryggingar hafa gert breytingar á umsýslu hjálpartækja með það að markmiði að bæta þjónustu, stytta biðtíma og auka skilvirkni í afgreiðslu umsókna.

Ein helsta breytingin er að umsóknir þurfa nú að innihalda nákvæmari upplýsingar um val á hjálpartæki og fylgihlutum. Með skýrari upplýsingum í upphafi má draga úr töfum og einfalda vinnslu umsókna.

Einfaldara ferli og aukin sjálfvirkni

Unnið er að umbótum í Gagnagátt þar sem umsóknarferlið verður skýrara og sjálfvirkara. Þar verður m.a. krafist að velja vörunúmer úr vörulista sem tryggir að allar nauðsynlegar upplýsingar fylgi umsókn frá upphafi.

Einnig verður lögð áhersla á að skrá hvern fylgihlut sérstaklega, sem dregur úr líkum á rangri afgreiðslu og flýtir fyrir afgreiðslu.

Í farvegi eru breytingar á fyrirkomulagi ytri lagera. Unnið er að því að hjálpartæki verði framvegis afhent beint frá birgjum á lagera, án viðkomu hjá Sjúkratryggingum. Markmiðið er að einfalda flæði og stytta afhendingartíma.

Fleiri möguleikar til beinnar pöntunar og aukinn sveigjanleiki

Jafnframt hefur verið opnað á aukna möguleika til að panta hjálpartæki beint frá birgjum þegar þau eru ekki til á lager. Unnið er að frekari þróun þess fyrirkomulags til að auka hraða og skilvirkni í þjónustunni.

Til að stytta biðtíma hefur einnig verið breytt verklagi þannig að umsóknir geta verið samþykktar án þess að tilgreina nákvæma tegund hjálpartækis eða seljanda. Notendur geta þá valið hentugt hjálpartæki hjá viðurkenndum birgjum innan samþykkts flokks.