Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Er bankareikningurinn þinn skráður?

23. febrúar 2026

Uppgjör á eldri inneignum

Undanfarin ár hafa inneignir safnast upp í kerfum Sjúkratrygginga sem ekki hefur verið unnt að greiða út, meðal annars vegna þess að bankareikning vantaði eða skráður reikningur var ekki lengur í gildi.

Nú stendur yfir vinna við að greiða þessar inneignir úr greiðsluþátttökukerfinu. Greiðslur verða lagðar inn á þann bankareikning sem skráður er hjá Fjársýslunni. Við bendum á að hægt er að uppfæra reikningsnúmer á Mínum síðum undir Mínum stillingum.

Athygli er vakin á því að í einstaka tilvikum kann að vera ósamræmi á milli reikningsnúmers sem birtist á greiðslukvittun og þess reiknings sem greitt var inn á, þar sem bankareikningur / reikningsnúmer var þá uppfært eftir útgáfu kvittunar.