Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Sjúklingatrygging 2025

28. apríl 2025

Upplýsingabréf sem send hafa verið sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki

Tími til þess að ganga frá greiðslu iðgjalda hefur verið framlengdur með reglugerð til 30. júní 2025. Innheimta iðgjalda vegna sjúklingatryggingar er hafin, en þar sem um nýtt verkefni er að ræða hefur innheimta tekið nokkuð lengri tíma en áætlað var. Nokkur fjöldi hefur þegar fengið senda greiðsluseðla og aðrir mega búast við þeim á allra næstu vikum.

Þau sem eiga eftir að ganga frá skráningu vegna sjúklingatryggingar í Gagnagátt, er bent á að gera það strax. Að öðrum kosti verður innheimt iðgjald í samræmi við fullt starf og fjöldi launamanna rekstraraðila kann að verða áætlaður.

Samkvæmt nýjum lögum um sjúklingatryggingu nr. 47/2024 flyst sjúklingatrygging sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks frá vátryggingafélögum til Sjúkratrygginga. Breytingin gildir um tjón sem verða 1. janúar 2025 og síðar.

Hér í viðhengi er að finna fjögur bréf með leiðbeiningum sem send hafa verið sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki með rafrænum hætti. Bréfin voru birt 21. nóvember 2024, 17. desember 2024, 10. janúar 2025 og 3. apríl 2025. Þess er óskað að sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk kynni sér bréfin vel.

Upphæð iðgjalds sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks hefur verið ákveðið með reglugerð heilbrigðisráðherra.