Fara beint í efnið

Opnað hefur verið fyrir útboð Sjúkratrygginga á læknisfræðilegri myndgreiningarþjónustu

26. september 2024

Fjársýsla ríkisins, fyrir hönd Sjúkratrygginga, standa fyrir opnu útboði á myndgreiningarannsóknum fyrir sjúkratryggða einstaklinga.

Sjúkratryggingar lógó

Um ræðir almennar röntgenrannsóknir, tölvusneiðmyndarannsóknir, ómskoðanir og segulómskoðanir.
Skilafrestur tilboða er til 8.11.2024 kl. 12.00.

Allar nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi Fjársýslu ríkisins, TendSign og á útboðsvef fyrir opinber útboð.

Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið má nálgast á heimasíðu Fjársýslu ríkisins.