Fara beint í efnið

Frá öllum til allra

1. júlí 2024

Að tryggja heilbrigði - Stefna Sjúkratrygginga.

Sjúkratryggingar lógó

Sjúkratryggingar eiga sér langa sögu þar sem fjölbreyttir hópar, félög og einstaklingar hafa komið saman. Sá árangur að allir séu sjúkratryggðir er ekki sjálfgefinn. Sjúkratryggingar eru frá öllum til allra.

Ný stefna Sjúkratrygginga var staðfest af stjórn 13. maí síðastliðinn en hún tekur á sýn, gildum og hlutverki Sjúkratrygginga ásamt stefnumótandi áherslum. Öll þessi atriði munu færa þjónustuna til nýrri tíma.