Fara beint í efnið

Þjónustuver og símsvörun lokuð þriðjudaginn 24. október

23. október 2023

Boðað hefur verið til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24.október 2023 þar sem konur og kvár, sem það geta, eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf.

Fjölskylda - Sjúkratryggingar

Sjúkratryggingar hvetja starfsfólk til að leggja þessari baráttu lið sitt og taka þátt í viðburðum dagsins. Af þeim sökum verður afgreiðsla og símsvörun lokuð hjá Sjúkratryggingum þann dag.

Vakin er athygli á Réttindagátt á vef Sjúkratrygginga. Þar geta einstaklingar fylgst með sínum málum hjá stofnuninni ásamt því að skila inn gögnum til Sjúkratrygginga á öruggan hátt.