Fara beint í efnið

Samningur um tannlæknaþjónustu

5. júní 2023

Sjúkratryggingar hafa gert nýjan samning um tannlæknaþjónustu.

Tannlæknir - Sjúkratryggingar

Samningurinn tekur við af þremur eldri samningum og er um eftirfarandi þjónustu:

  • Forvarnir og tannlækningar barna til 18 ára aldurs.

  • Tannlækningar aldraðra og öryrkja.

  • Tannlækningar, aðrar en tannréttingar, vegna alvarlegra meðfæddra galla, slysa eða sjúkdóma.

Samningurinn gildir til og með 31. janúar 2024. Fyrir utan sameiningu fyrri samninga eru efnislegar breytingar takmarkaðar enda ætlunin að endurskoða gjaldskrár á samningstímanum. Þó hafa verið gerðar ýmsar breytingar á gjaldskrá sem ætlað er að bæta þjónustu og gera hana markvissari.

Samhliða var gerður samstarfssamningur milli Sjúkratrygginga og Tannlæknafélags Íslands meðal annars um endurskoðun gjaldskrár á samningstímanum. Stefnt er að gerð langtímasamnings um sömu þjónustu sem tekur við af ofangreindum samningi með tilliti til niðurstöðu þeirrar vinnu sem unnin verður á samningstímanum. Jafnframt er vinna við gerð samnings um tannréttingar fram undan.