Fara beint í efnið

Störf í boði

9. apríl 2022

Sjúkratryggingar auglýsa laust til umsóknar fullt starf sérfræðings og tímabundið starf fulltrúa í Heilbrigðisþjónustudeild á Réttindasviði.

Sjúkratryggingar lógó

Heilbrigðismenntaður sérfræðingur

Sjúkratryggingar auglýsa laust til umsóknar fullt starf sérfræðings í Heilbrigðisþjónustudeild á Réttindasviði. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í deild sem sér um framkvæmd samninga við veitendur heilbrigðisþjónustu, m.a. við sjúkrahús, hjúkrunarheimili, heilsugæslustöðvar og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn. Jafnframt sér hún um afgreiðslur umsókna á tæknilegum hjálpartækjum.

Sótt er um hér: Stjórnarráðið | Heilbrigðismenntaður sérfræðingur (stjornarradid.is)

Fulltrúi í Heilbrigðisþjónustudeild

Sjúkratryggingar óska eftir að ráða fulltrúa í Heilbrigðisþjónustudeild á Réttindasviði stofnunarinnar. Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár í deild sem sér um afgreiðslur umsókna/reikninga á tæknilegum hjálpartækjum og framkvæmd samninga, m.a. við hjúkrunarheimili og sjúkrahús, sjálfstætt starfandi lækna, sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

Sótt er um hér: Stjórnarráðið | Fulltrúi í Heilbrigðisþjónustudeild (stjornarradid.is)