Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra Forsíða
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra Forsíða

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra

Vinnufundur á SHH - Staða íslensks táknmáls

10. febrúar 2026

Í síðustu viku var haldinn vinnufundur um stöðu íslensks táknmáls.

Fundurinn var haldinn á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, að frumkvæði Málnefndar um íslenskt táknmál og með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.

Fundinn sóttu fulltrúar úr samstarfshópi um málstefnu íslensks táknmáls auk annarra fulltrúa frá Samskiptamiðstöð, Félagi heyrnarlausra, Málnefnd um íslenskt táknmál, Hlíðaskóla og Leikskólanum Sólborg.

Dr. Filipe Venade de Sousa, lagaprófessor sem sérhæfir sig í réttindum döff fólks og viðurkenningu táknmála var fenginn til landsins í þeim tilgangi að sitja fundinn með hópnum og rýna í stöðu íslensks táknmáls og lagaumhverfi þess hér á landi.

Megin niðurstaða fundarins var sú að þótt margt hafi áunnist í þágu döff fólks og íslensks táknmáls á undanförnum árum og áratugum eru víða brotalamir í lagaumgjörðinni sem tryggja ekki tungumálarétt táknmálstalandi fólks hér á landi.

Hér má sjá viðtal sem tekið var við Dr. Filipe: Dr. Filipe

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra

Hafðu samband

Sími: 562 7702 

Túlkaþjónusta: tulkur@shh.is

Táknmálskennsla: taknmal@shh.is

Skrifstofa: shh@shh.is

Skrifstofa SHH

Opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9 - 15 og föstudaga frá kl. 9 - 12

Myndsímatúlkun er opin alla virka daga frá kl. 10 - 14

Túlkaþjónusta í neyðartilvikum utan skrifstofutíma - hafið samband við 112

Heimilisfang

Laugavegur 166, 5. hæð
105 Reykjavík

Staðsetning á korti

kt. 520491-1559

Hafðu samband

Sími: 562 7702 

Túlkaþjónusta: tulkur@shh.is

Táknmálskennsla: taknmal@shh.is

Skrifstofa: shh@shh.is

Skrifstofa SHH

Opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9 - 15 og föstudaga frá kl. 9 - 12

Myndsímatúlkun er opin alla virka daga frá kl. 10 - 14

Túlkaþjónusta í neyðartilvikum utan skrifstofutíma - hafið samband við 112

Heimilisfang

Laugavegur 166, 5. hæð
105 Reykjavík

Staðsetning á korti

kt. 520491-1559

shh-35year-logo
sign-wiki
facebook-logo
youtube-logo