Sigríður Borg Harðardóttir hlýtur heiðursviðurkenningu Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra árið 2026.
12. febrúar 2026
Í tilefni af degi íslensks táknmáls árið 2026 veitir Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH) Sigríði Borg Harðardóttur, Sísí, heiðursviðurkenningu SHH fyrir ómetanlegt framlag hennar til varðveislu íslensks táknmáls.
Á SHH eru varðveitt myndbönd þar sem Sísí hefur verið fengin til viðtals um líf sitt og upplifanir af ýmsu tilefni. Hún kemur jafnframt fram í myndböndum af viðtölum við nokkra af elstu málhöfum sem upptökur eru til af, og birt voru hér á SignWiki í tilefni alþjóðaviku döff árið 2024, en þar er Sísí spyrill. Sísí hefur einnig lagt sitt af mörkum til táknavarðveislu á SHH en hún lagði bæði til ýmis gömlu tákn úr íslensku táknmáli og nafnatákn fólks úr samfélagi döff, sérstaklega þeirra sem eldri eru og jafnvel látin.
Myndböndin sem eru birt á SignWiki í tilefni dags íslensks táknmáls, eru birt með leyfi Sísíar. Birting þeirra er einnig liður í stefnu SHH 2026-2029 og fjármálaáætlun stjórnvalda 2026-2030, þar sem lögð er áhersla á varðveislu málsins og aðgengi almennings að ÍTM menningararfi þjóðarinnar.
Sigríður Borg Harðardóttir, eða Sísí eins og hún er gjarnan kölluð fæddist í Reykjavík þann 4. október 1941. Fimm ára gömul fór hún í Heyrnleysingjaskólann í Stakkholti og lauk unglingaprófi þaðan árið 1957. Þar lærði hún íslenskt táknmál af bekkjarsystkinum sínum. Hún var virk í félagsstarfi og stjórn Félags heyrnarlausra á árunum 1975-1989. Sísí starfaði við ýmis störf í lengri og skemmri tíma, s.s. á Hótel Búðum, við fiskvinnslu og skyrtusaum. Þá starfaði hún í Vesturhlíðaskóla við að kenna foreldrum döff barna táknmál og sinnti öldruðum döff á Hrafnistu DAS og í liðveislu fram að starfslokum.
Hér er slóð á SignWiki þar sem þið getið kynnt ykkur nánar þann fjársjóð sem þið og komandi kynslóðir geta leitað í, séð áhugaverðar sögur og rannsakað íslenskt táknmál.

