Sandra lætur af störfum
29. maí 2026
Sandra Helgadóttir, táknmálstúlkur hefur ákveðið að láta af störfum hjá SHH og halda á vit nýrra ævintýra.

Sandra hefur á undanförnum 5 árum sinnt fjölbreyttum verkefnum á stofnuninni, þ.m.t. táknmálskennslu, snertitáknmálskennslu og táknmálstúlkun og snertitáknmálstúlkun.
Hún hefur því verið mikilvægur hluti af teyminu okkar og lagt sitt af mörkum til að veita og efla þjónustu SHH.
Við hennar verkefnum taka nú aðrir öflugir starfsmenn stofnunarinnar sem hafa notið hennar leiðsagnar á undanförnum vikum.
Við þökkum Söndru kærlega fyrir skemmtilegt samstarf og jákvætt framlag hennar til starfseminnar á þeim tíma sem hún hefur starfað hjá okkur og óskum henni velfarnaðar.
