Samskiptamiðstöð flutt á Laugaveg 166
25. júní 2024
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra er flutt á Laugaveg 166.
Nýtt húsnæði og afgreiðslutími skrifstofu
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra er nú flutt á 5. hæð Laugavegar 166, þar sem Skatturinn var áður til húsa.
Skrifstofa stofnunarinnar verður opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9 til 15 og föstudaga frá kl. 9 til 12.
Stofnunin veitir eftir sem áður fyrirfram umbeðna þjónustu utan afgreiðslutíma skrifstofu.
Hægt er að senda tölvupóst allan sólarhringinn á eftirfarandi netföng:
vegna táknmálstúlkaþjónustu.
vegna táknmálskennslu og táknmálsrannsókna.
vegna almennra fyrirspurna og reikningshalds.
Starfsfólk Samskiptamiðstöðvar hlakkar til að taka á móti viðskiptavinum á nýjum stað en athygli er þó vakin á því að yfirstandandi framkvæmdir í húsinu, bæði innan stofnunar og utan hennar, geta tímabundið raskað aðgengi viðskiptavina okkar að skrifstofu stofnunarinnar.