Riddari Kærleikans á íslensku táknmáli
13. nóvember 2025
Í dag frumsýndu Táknmálseyjubörnin hér á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra táknmálsútgáfu lagsins “Riddari Kærleikans” í þýðingu Kólbrúnar Völkudóttur.

Höfundar lagsins eru þær Dagmar Helga Helgadóttir og Valgerður Rakel Rúnarsdóttir – lagið er sungið á íslensku af GDRN.
Verkefnið er unnið af Samskiptamiðstöð í samstarfi við List fyrir alla og er styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands.
