Krakkasíða SHH opnuð á degi íslensks táknmáls
11. febrúar 2026
Í dag, á degi íslensks táknmáls, var ný og spennandi Krakkasíða Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH) opnuð formlega.
Opnunin fór fram á hátíðardagskrá sem Málnefnd um íslenskt táknmál og Hlíðaskóli stóðu fyrir í tilefni dagsins.
Nýja krakkasíðan er ætluð táknmálsbörnum á öllum aldri og býður upp á skemmtilegt og fræðandi efni á íslensku táknmáli. Þar má m.a. finna VV – sögur, fjölbreytt fræðsluefni, efni sem hefur verið unnið í Táknmálseyju og margt fleira.
Krakkasíðan er í stöðugri þróun og verður nýju efni bætt við jafnt og þétt. Markmið krakkasíðunnar er að efla aðgengi táknmálsbarna að efni á íslensku táknmáli og skapa vettvang þar sem þau geta bæði lært og skemmt sér.
Hér má skoða Krakkasíðu SHH

