Fara beint í efnið
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra Forsíða
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra Forsíða

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra

Í tilefni alþjóðadags táknmála birtir SHH myndbönd með tveimur málhöfum ÍTM á SignWiki

23. september 2026

Í tilefni af Alþjóðadegi táknmála 2026 eru myndbönd með Böðvari Árnasyni og Jósef Helga Helgasyni birt á SignWiki.

Böðvar og Jósef voru skólabræður úr Heyrnleysingjaskólanum í Stakkholti, báðir fæddir 1941 og hefðu því orðið 85 ára á þessu ári. Þeir eru báðir látnir, Jósef lést árið 2012 en Böðvar 2019.

Böðvar og Jósef voru báðir virkir meðlimir í Félagi heyrnarlausra og má oft sjá þeim bregða fyrir á óformlegum myndböndum þaðan. Þeir lögðu einnig sitt af mörkum með formlegri hætti fyrir SHH með því að taka þátt í rannsóknum og viðtölum. Myndböndin með þeim félögum spanna um 50 ára tímabil, allt frá upp úr 1960 til ársins 2010 og eru því mikilvægur hluti af sögu ÍTM. Um er að ræða viðtöl og frásagnir, auk ferðalaga og spjalls milli vina.

Myndböndin sem nú eru birt á SignWiki eru birt með leyfi fjölskyldna Böðvars og Jósefs. Þau eru liður í stefnu SHH 2026-2029 og fjármálaáætlun stjórnvalda 2026-2030, þar sem lögð er áhersla á varðveislu málsins og aðgengi almennings að ÍTM menningararfi þjóðarinnar.

Myndböndin má sjá hér: Flokkur:Málhafar ÍTM, fæddir 1941-1961 - SignWiki

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra

Hafðu samband

Sími: 562 7702 

Túlkaþjónusta: tulkur@shh.is

Táknmálskennsla: taknmal@shh.is

Skrifstofa: shh@shh.is

Skrif­stofa SHH

Opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9 - 15 og föstudaga frá kl. 9 - 12

Myndsímatúlkun er opin frá kl. 10:00-15:00 mánudaga til fimmtudaga og kl.10:00-12:00 á föstudögum.

Túlkaþjónusta í neyðartilvikum utan
skrifstofutíma - hafið samband við 112

Heim­il­is­fang

Laugavegur 166, 5. hæð
105 Reykjavík

Staðsetning á korti

kt. 520491-1559