Fara beint í efnið
Ríkissaksóknari Forsíða
Ríkissaksóknari Forsíða

Ríkissaksóknari

Fundur ríkissaksóknara Norðurlandanna á Grænlandi

6. júlí 2026

Fundur ríkissaksóknara Norðurlandanna var að þessu sinni haldinn á Grænlandi dagana 27.-30. apríl 2026, í boði ríkissaksóknara Danmerkur.

Á fundinum, sem haldinn var í Nuuk, fengu fundarmenn fræðslu um verkefni ákæruvaldsins og lögreglunnar á Grænlandi, sem og verkefni dómstóla og fangelsismálayfirvalda þar í landi, en starfsemi nefndra stofnana þarf m.a. að taka mið af gríðarlegum fjarlægðum á milli staða sem ekki er einfalt að ferðast á milli og þeim áskorunum sem eru til staðar vegna sérstöðu grænlenskunnar sem tungumáls. Einnig heimsóttu fundarmenn umboðsmann danska ríkisins á Grænlandi (Rigsombudsmanden i Grønland), sem annast þá málaflokka stjórnsýslunnar sem eru ekki undir heimastjórninni á Grænlandi, og varnarsveit danska hersins á Grænlandi (Arktisk Kommando).

Ríkissaksóknari

Hafðu samband

Sími: 444 2900

Netfang: saksoknari@saksoknari.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga er opið frá
9 til 12 og 13 til 15

Föstudaga er opið frá 9 til 12

Heim­il­is­fang

Suðurlandsbraut 4, 6. hæð

108 Reykjavík

Kennitala 530175-0229