Fara beint í efnið
Ríkissaksóknari Forsíða
Ríkissaksóknari Forsíða

Ríkissaksóknari

Ekki óskað eftir áfrýjunarleyfi í hryðjuverkamálinu

10. júlí 2026

Ríkissaksóknari telur ekki efni til að óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar frá 18. júní sl. í máli nr. 324/2024 en með dóminum voru tveir menn sýknaðir af tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í þeirri tilraun en sakfelldir fyrir stórfelld vopnalagabrot.

Með dómi Hæstaréttar frá 11. mars sl. í máli nr. 28/2025 var fyrri dómur Landsréttar ómerktur og málinu vísað aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju. Í dómi Landsréttar frá 18. júní er brugðist við þeim atriðum sem Hæstiréttur gerði athugasemdir við og voru grundvöllur heimvísunarinnar.

Þá er niðurstaða Landsréttar um að sýkna ákærðu af nefndum brotum að verulegu leyti reist á mati réttarins á sönnunargildi munnlegs framburðar ákærðu og vitna sem Hæstiréttur getur ekki endurmetið.

Ríkissaksóknari

Hafðu samband

Sími: 444 2900

Netfang: saksoknari@saksoknari.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga er opið frá
9 til 12 og 13 til 15

Föstudaga er opið frá 9 til 12

Heim­il­is­fang

Suðurlandsbraut 4, 6. hæð

108 Reykjavík

Kennitala 530175-0229