Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða
Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða

Náttúruhamfaratrygging Íslands

Reglur um tryggingavernd NTÍ eru óbreyttar

27. febrúar 2026

Af gefnu tilefni viljum við leiðrétta misskilning varðandi náttúruhamfaratryggingar sem komið hefur fram í opinberri umræðu nýverið varðandi breytingar á reglum.

Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) hefur ekki breytt reglum með þeim hætti að ný tjón falli á eigendur í stað NTÍ. Reglur um tryggingavernd eru óbreyttar.

Í reglugerð um NTÍ er tekið fram að óheimilt er að stofna nýja náttúruhamfaratryggingu eða breyta eldri tryggingu eigna á þeim stað eða svæði, sem er í hættu þegar vátryggingaratburður er hafinn eða er yfirvofandi.

Með hliðsjón af því hvað jarðhræringar við Grindavík hafa staðið lengi yfir, ákvað stjórn NTÍ að koma til móts við íbúa og fyrirtækjaeigendur á svæðinu* og beita rýmkaðri túlkun á 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar. Það felur í sér að heimilt er að tryggja önnur verðmæti en þegar eru tryggð, gagnvart öðrum vátryggingaratburðum en þeim sem nú þegar standa yfir.

Um er að ræða skýra afmörkun gagnvart yfirstandandi atburði, en ekki breytingu á reglum eða skerðingu á bótarétti.

NTÍ leggur áherslu á að mikilvægt sé að fólk jafnt sem fyrirtæki hafi skýrar og réttar upplýsingar um tryggingavernd sína og mun áfram leitast við að veita greinargóðar upplýsingar um framkvæmd reglna.

* Sjá frétt frá 29. janúar 2026 á heimasíðu NTÍ.

Hafðu samband

Sími: 575 3300

Netfang: nti@nti.is

Opnunartími

Mánudaga - fimmtudaga:
9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Heimilisfang

Hlíðarsmári 14

201 Kópavogur