Rauður varúðarþríhyrningur á pakkningum lyfja
Hvað þýðir það að lyfjapakkning sé merkt rauðum varúðarþríhyrning og hvar er hægt að finna upplýsingar um hann?
Þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af áhrifum lyfja ef þau eru ekki merkt?
Rauðan varúðarþríhyrning má finna á pakkningum ákveðinna lyfja og er honum ætlað að gefa til kynna að lyfið geti valdið slævingu sem hefur áhrif á hæfni til aksturs og starfa sem krefjast óskertrar árvekni. Þau lyf sem merkt eru rauðum þríhyrningi eru af ýmsu tagi en m.a. má nefna róandi lyf, ópíóíða, ákveðin verkjalyf, ofnæmislyf og ógleðilyf svo dæmi séu nefnd.

Dæmi um lyf sem eru merkt með rauðum varúðarþríhyrningi
Ópíóíðar
Ákveðin verkjalyf
Flogaveikilyf
Kvíðastillandi lyf
Róandi lyf
Hóstastillandi lyf
Ferðaveikilyf
Ógleðilyf
Ofnæmislyf
Mígrenislyf
Ákveðin þyngdarstjórnunarlyf
ADHD lyf
Öll lyf sem innihalda meira en 10% alkóhól
Svefnlyf
Lyfjastofnun gaf út og viðheldur lista yfir þau lyf sem skal merkja með þríhyrningi hérlendis. Markaðsleyfishöfum og umboðsmönnum er skylt að sjá til þess að lyf sem eru á listanum séu merkt viðvörunarþríhyrningi. Ef hann er ekki prentaður á umbúðir lyfsins þarf að merkja pakkningarnar sérstaklega með límmiða.
Hafa lyf sem ekki eru merkt með þessum þríhyrningi engin áhrif á hæfni notandans?
Þríhyrningurinn er, eins og nafnið gefur til kynna, notaður til viðvörunar en mikilvægt er að hver og einn leggi mat á hæfni sína eftir inntöku lyfja þrátt fyrir að viðkomandi lyf sé ekki sérstaklega merkt.
Áhrif lyfja eru einstaklingsbundin og því gætu lyf sem ekki eru merkt með varúðarþríhyrningi haft áhrif á akstursfærni þrátt fyrir að merkingu um slíkt sé ekki að finna á pakkningu lyfsins.
Alltaf ætti að lesa fylgiseðil fyrir notkun lyfja því þar koma fram upplýsingar um varúðarráðstafanir hvort sem lyfið er merkt með varúðarþríhyrningi eða ekki.
Til dæmis ætti að hafa eftirfarandi í huga:
Augdropar sem víkka sjáöldur geta skert sjón tímabundið
Blóðþrýstingslyf gætu valdið svima, óþægindum og lengri viðbragðstíma
Blóðsykurslyf geta óbeint hægt á viðbrögðum og valdið svima ef blóðsykur lækkar of hratt
Lyf við þunglyndi og öðrum geðkvillum hafa áhrif á miðtaugakerfið og geta því gert notandann syfjaðan og hægt á viðbrögðum
Ýmis jurtalyf valda syfju, sérstaklega þau sem innihalda valerian
Öll lyf gætu haft áhrif sem ekki var búist við, sérstaklega í byrjun meðferðar
Lyf.is - sýnileiki á netinu
Frá og með 8. júlí 2025 eru öll markaðssett lyf sem merkja á með rauðum varúðarþríhyrningi sérmerkt á vef sérlyfjaskrár. Þar má sjá undir nafni, styrk og lyfjaformi lyfsins hvort það eigi að vera merkt á þennan hátt. Þessar upplýsingar eru einnig sýnilegar áður en lyfjaspjaldið sjálft er opnað í leitarglugganum.

Að auki hefur verið bætt við möguleika í leitarvél vefsins til að sía sérstaklega eftir þeim markaðssettu lyfjum sem falla undir þessar merkingar.

Hvernig lítur þríhyrningurinn út og hvar er hann staðsettur?
Varúðarþríhyrningurinn á að vera rauður á hvítum bakgrunni með odd sem vísar upp en stærðin er breytileg eftir plássinu sem hann hefur á pakkningu. Yfirleitt eru hliðar hans um 10 mm langar og breidd þeirra 2 mm.

Í þeim tilfellum sem varúðarþríhyrningurinn er ekki hluti af áletrun pakkningar en lyfið á sannarlega að vera merkt hefur verið gefin heimild til að merkja pakkninguna með límmiða sem ber þríhyrninginn.
Eru öll lyf sem falla undir þessar reglur pottþétt merkt?
Nýverið var farið í átak þar sem markaðsleyfishafar voru minntir á skyldur sínar til að merkja ákveðin lyf með rauðum varúðarþríhyrning. Þeim var gefinn frestur til janúar 2026 til að framfylgja þessum reglum og því gæti verið að pakkningar sem ættu að vera merktar séu það í einhverjum tilfellum ekki.
Þar sem undanþágulyf eru ekki markaðssett á sama hátt og önnur lyf hérlendis er ekki hægt að ganga út frá því að þau séu merkt íslenskum leiðbeiningum. Því er afar mikilvægt að sjúklingar séu upplýstir um eiginleika þeirra, þ.m.t. ef þau geta haft áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla. Leitið því ráða hjá lækni eða lyfjafræðingi ef vafi leikur á því hvort lyfið geti valdið áhrifum á aksturseiginleika.
Rauði þríhyrningurinn er notaður í Danmörku, Noregi og Finnlandi og telst því ekki alþjóðlegt tákn. Þess vegna gætu viðvaranir á pakkningum lyfja sem keypt eru erlendis verið frábrugðnar viðvörunum á íslenskum pakkningum lyfja.
Mismunandi kröfur eru á milli landa um hvaða lyf skuli merkja með varúðarþríhyrningi. Vegna smæðar markaðarins deilir Ísland oft pakkningum með einhverju Norðurlandanna. Þar af leiðandi getur það komið fyrir að lyf, sem getur haft áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla, sé á markaði á Íslandi án þess að vera merkt rauðum varúðarþríhyrningi. Þetta ástand er þó tímabundið þar sem að skylt verður að merkja þessi lyf með límmiða með rauðum varúðarþríhyrningi í síðasta lagi í janúar 2026.
Alltaf er því mikilvægt að muna að leita upplýsinga og lesa sér til um eigin lyf áður en notkun hefst.
Sjá einnig:
Þessi grein er ein af fræðslugreinum Lyfjastofnunar.
Síðast yfirfarið: 11. september 2025
