Mikilvægar tímalínur
Útgáfa verðskrár
Mánuði fyrir gildistöku lyfjaverðskrár
Þarf að senda inn umsókn um birtingu á nýjum markaðssettum lyfjum. Þarf að berast með eins mánaðar fyrirvara.
Dæmi: Sótt er um birtingu í síðasta lagi 30. nóvember ef birting á að vera 1. janúar.
Forsenda fyrir birtingu í lyfjaverðskrá er að markaðsleyfi liggi fyrir, sem og samþykkt hámarksheildsöluverð fyrir lyfið.
Fyrsti til tíundi hvers mánaðar
Óskir um verðbreytingar á umboðsmannaverði. Hægt er að senda inn verðbreytingar 1.–10. hvers mánaðar sem á að birtast í lyfjaverðskrá næsta mánaðar.
Sjötti hvers mánaðar
Ósk um endurbirtingu upplýsinga í lyfjaverðskrá. Sækja þarf um endurbirtingu fyrir 6. hvers mánaðar til að hægt sé að birta í næstu lyfjaverðskrá á eftir.
Dæmi: Sótt er um endurbirtingu fyrir 6. desember ef birting á að vera 1. janúar.
Ellefta til tólfta hvers mánaðar
Listi yfir lyf sem eru væntanleg í lyfjaverðskrá. Þann 11.-12. hvers mánaðar er birt frétt með lista yfir þau lyf sem óskað hefur verið eftir að birtist í lyfjaverðskrá 1. næsta mánaðar.
Fjórum virkum dögum fyrir gildistöku lyfjaverðskrár
Útgáfa lyfjaverðskrárgengis
Fjórum virkum dögum fyrir 1. hvers mánaðar er gefið út svokallað lyfjaverðskrárgengi. Gengið er notað til að uppfæra lyfjaverðskrá sem tekur gildi 1. hvers mánaðar.
Fjórum virkum dögum, í síðasta lagi, fyrir gildistöku lyfjaverðskrár
Þarf að senda inn óskir um birtingu á nýjum undanþágulyfjum
Sækja þarf um verð og birtingu í síðasta lagi fjórum virkum dögum fyrir gildistöku lyfjaverðskrár, sem er 1. hvers mánaðar. Verðskráin er gefin út tveimur virkum dögum fyrir gildistöku. Forsenda fyrir svo skjótri afgreiðslu er að verðumsókn sé samkvæmt reglum.
Ef þörf er á að ávísa og afgreiða nýtt undanþágulyf áður en að gildistöku lyfjaverðskrár kemur fyrsta hvers mánaðar sjá heildsalar um að upplýsa viðskiptavini sína, Sjúkratryggingar og Embætti Landlæknis um samþykkt HHSV og HSSV, vörunúmer, merkingu, og aðrar nauðsynlegar upplýsingar þegar Lyfjastofnun hefur samþykkt hámarks heildsöluverð (HHSV)
Tveimur virkum dögum fyrir gildistöku lyfjaverðskrár
Útgáfa lyfjaverðskrár
Lyfjaverðskrá hvers mánaðar kemur út tveimur virkum dögum fyrir 1. hvers mánaðar. Auk þess er birtur listi með helstu breytingum.
Afgreiðslutími verð- og greiðsluþátttökuumsókna
Verðumsókn (hámarks heildsöluverð), nýtt lyf: Allt að 90 dagar.
Greiðsluþátttökuumsókn, lyf með samþykkt hámarks heildsöluverð: Allt að 90 dagar.
Verð- og greiðsluþátttökuumsókn: Allt að 180 dagar.
Verðhækkun/verðlækkun hámarks heildsöluverðs: Allt að 90 dagar.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í 22. gr. reglugerðar nr. 1414/2020 um verðlagningu lyfja og greiðsluþátttöku í lyfjum.
