Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Umsýsla umboðsmannaverðs

Verðaðgangur

Umboðsmannaverð er afsláttarverð umboðsmanns á lyfi. Sé umboðsmannaverð lægra en samþykkt hámarksheildsöluverð er það verð notað sem innkaupsverð apóteka. Umboðsmannaverð er birt í lyfjaverðskrá, sjá nánar hvar, í skýringum með lyfjaverðskrá.

Lyfjafyrirtæki og umboðsaðilar bera ábyrgð á að réttar upplýsingar um umboðsmannaverð séu skráðar fyrir viðkomandi lyf og pakkningu. Breytingar á umboðsmannaverði eru skráðar í Verðaðgangi Lyfjastofnunar, þar sem jafnframt er hægt að óska eftir breytingu á viðmiðunargjaldmiðli.

Breytingar sem eiga að birtast í lyfjaverðskrá næsta mánaðar þurfa að berast 1.–10. hvers mánaðar.

Sótt er um aðgang að kerfinu skriflega í gegnum Hafa samband hjá Lyfjastofnun. Þar þarf að skrá netfang, nafn og símanúmer. Að auki er mikilvægt er að tilgreina í reitinn "skilaboð" hvert fyrirtækið er. Til þess að tryggja að erindið skili sér á réttan stað er mikilvægt að skrá í efnislínu „Ósk um aðgang að kerfi fyrir umboðsmannaverð“ og velja úr efnislistanum „Verð- og greiðsluþátttaka“.

Lög og reglugerðir

Um verðlagningu lyfja, þar á meðal skráningu lægra söluverðs en samþykkts hámarksverðs, fer samkvæmt lyfjalögum nr. 100/2020. Samkvæmt lögunum skulu lyfjaheildsalar og markaðsleyfishafar sem vilja selja ávísunarskyld lyf á lægra verði en hámarksverð tilkynna þeir það verð til Lyfjastofnunar. Hið lækkaða verð er birt í næstu útgáfu lyfjaverðskrár.

Nánari reglur um verðlagningu lyfja, ákvörðun hámarksverðs og birtingu upplýsinga í lyfjaverðskrá er að finna í reglugerð nr. 1414/2020 um verðlagningu lyfja og greiðsluþátttöku í lyfjum