Þessi frétt er meira en árs gömul
Kynsjúkdómar og lyf við þeim
19. september 2023
Fjölmörg lyf eru til við kynsjúkdómum og flest þeirra eru markaðssett á Íslandi.

Til eru yfir 30 kynsjúkdómar en þeir algengustu á Íslandi eru kynfæravörtur, kynfæraáblástur og klamydía samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu. Aðrir kynsjúkdómar, sem eru ekki eins útbreiddir, eru t.d. lekandi, sárasótt og HIV. Fjölmörg lyf eru til við kynsjúkdómum.
Ársskýrsla sóttvarna
Nýlega birti embætti landlæknis ársskýrslu sóttvarna fyrir árið 2022.
Samkvæmt skýrslunni var klamydía algengasti kynsjúkdómurinn sem greindist á Íslandi á því ári og jafnframt sá eini sem greindist í meira mæli meðal kvenna en karla. Svipaður fjöldi greindist með klamydíu og undanfarin ár eða 1.861.
Aukning varð í greiningum á lekanda, 158 einstaklingar greindust á árinu sem er mesti fjöldi sem greinst hefur hérlendis í rúmlega 30 ár. Ekki hafa komið fram skýringar á þessari fjölgun en hana má einnig sjá í öðrum Evrópulöndum.
Kynsjúkdómar sem hafa smitast með veirum eru oftast ólæknandi og er einungis hægt að draga úr einkennum og hindra framgang þeirra tímabundið. Þá kynsjúkdóma sem smitast með bakteríum eða lúsum er oftast hægt að lækna með lyfjum.
Einstaklingur myndar ekki ónæmi gegn kynsjúkdómi sem hann hefur áður fengið meðferð við, þannig er hægt að fá sama sjúkdóm aftur og aftur. Jafnframt er hægt að fá fleiri en einn kynsjúkdóm samtímis.
Mikilvægt að kynna sér upplýsingar um lyf í fylgiseðli
Hér á eftir fer samantekt um þau lyf sem markaðssett eru á Íslandi og eru notuð við kynsjúkdómum. Vakin er athygli á að fylgiseðill lyfjanna er aðgengilegur í sérlyfjaskrá. Mjög mikilvægt er að kynna sér vel efni fylgiseðla lyfja því þar er að finna upplýsingar um rétta notkun lyfsins, auk upplýsinga sem geta komið í veg fyrir óþarfa eða skaðlega notkun, sem og margt annað sem stuðlar að öryggi við notkun þess.
Í undantekningartilfellum getur reynst nauðsynlegt að ávísa lyfjum sem ekki eru markaðssett hérlendis með svokallaðri undanþáguávísun. Fylgiseðlar undanþágulyfja eru ekki á íslensku en læknir sem ávísar undanþágulyfi gefur nauðsynlegar upplýsingar um lyfið, s.s. notkunarfyrirmæli og þekktar hugsanlegar aukaverkanir.
Bent er á að alltaf er hægt að leita ráðlegginga um lyf hjá lyfjafræðingum og lyfjatæknum í apótekum.
Klamydía
Smit og fylgikvillar
Klamydía orsakast af bakteríunni Chlamydia trachomatis . Flest smit verða við beina snertingu slímhúða við kynmök (um leggöng, endaþarm eða munn), að auki getur barn smitast við fæðingu um sýktan fæðingarveg móður.
Helstu fylgikvillar klamydíusýkingar hjá konum eru eggjaleiðara- og eggjastokksbólga með eða án ígerðar, legslímubólga, lífhimnubólga, ófrjósemi og utanlegsfóstur. Klamydía er talin ein algengasta ástæða ófrjósemi ungra kvenna.
Helstu fylgikvillar klamydíusýkingar hjá körlum er eistnalyppu- og eistnabólga.
Algengustu einkenni
Karlar: oft einkennalausir en geta fengið útferð, óþægindi eða sviða við þvaglát. Óþægindi í þvagrás er algengasta einkennið.
Konur: mjög oft einkennalausar en geta upplifað milliblæðingar, blæðingar eftir samfarir, útferð, verki í grindarholi eða þvagfæraeinkenni með sviða við þvaglát eða tíðum þvaglátum
Klamydía getur líka valdið sýkingu í hálsi og endaþarmi, sýkingu í augum, sýkingu nýbura eða ífarandi sýkingu.
Lyf sem notuð eru við klamydíu
Mismunandi er hver af eftirfarandi lyfjum eru valin, ein og sér eða saman, eftir þörfum einstaklingsins og eðli sýkingarinnar
Doxycyclinum Doxycyklin EQL Pharma töflur, 100 mgDoxylin töflur, 100 mg
Azithromycinum Azithromycin STADA mixtúruduft, 40 mg/mlAzithromycin STADA filmuhúðaðar töflur 500 mgAzithromicina Normon filmuhúðaðar töflur, 500 mgZitromax mixtúruduft, 40 mg/mlZitromax stofn fyrir innrennslisþykkni, 500 mgZitromax filmuhúðaðar töflur, 500 mg
Amoxicillinum Amoxicillin Mylan hörð hylki, 500 mgAmoxicillin Mylan töflur, 750 mgAmoxicillin Sandoz mixtúruduft, 100 mg/mlAmoxin filmuhúðaðar töflur, 500 mg og 750 mg
Metronidazolum Flagyl filmuhúðaðar töflur, 400 mgMetronidazol Actavis filmuhúðaðar töflur, 250 mg og 500 mg
Kynfæravörtur og kynfæraáblástur
Smit og fylgikvillar
Bæði kynfæravörtur og kynfæraáblástur geta valdið töluverðum óþægindum þegar sjúkdómarnir blossa upp og erfitt getur verið að meðhöndla þá. Báðir eru þeir af völdum veira og því ekki hægt að læknast af þeim heldur einungis meðhöndla einkennin.
Kynfæraáblástur er sýking af völdum veirunnar herpes simplex , tegund 2 en kynfæravörtur verða vegna sýkingar af human papilloma virus . Um 100 gerðir eru til af human papilloma virus og hafa sumar þeirra verið tengdar við leghálskrabbamein. Aðeins 2 gerðir valda vörtum sem birtast á slímhúð og húð.
Kynfæraáblástur smitast einungis með óvörðu kynlífi við sýktan einstakling með einkenni sýkingarinnar en kynfæravörtur smitast með snertingu húðar eða slímhúðar við sýkta húð eða slímhúð jafnvel þó að einkenni séu ekki til staðar.
Liðið getur langur tími frá smiti og þar til einkenni koma fram, jafnvel mánuðir.
Algengustu einkenni kynfæraáblásturs
Litlar blöðrur eða sár á kynfærum
Dofi, brunatilfinning eða kláði á kynfærum
Sársauki við þvaglát
Óvenjuleg útferð hjá konum
Algengustu einkenni kynfæravarta
Vörtur á ytri kynfærum og við endaþarmsop
Kláði og erting
Sársauki við samfarir hjá konum
Óþægindi við þvaglát
Lyf sem notuð eru við kynfæraáblæstri
Aciclovirum Aclovir töflur, 200 mgZovir innrennslisstofn, 500 mg/hglZovirax mixtúra, 80 mg/ml
Famciclovirum Famvir filmuhúðaðar töflur, 125 mg
Valaciclovirum Valablis filmuhúðaðar töflur, 500 mgValaciclovir Actavis filmuhúðaðar töflur, 500 mgValaciclovir Bluefish filmuhúðaðar töflur, 500 mgValtrex filmuhúðaðar töflur, 250 mg og 500 mg
Lyf sem notuð eru við kynfæravörtum
Imiquimodum Aldara krem, 5 %
Árið 2011 var byrjað að bólusetja stúlkur við 12 ára aldur gegn HPV veirunni til að draga úr líkum á kynfæravörtum og leghálskrabbameini. Núorðið stendur öllum 12 ára börnum til boða að fá bólusetninguna, óháð kyni
Papillomivirus mannabóluefni, gerð 16 og 18 Cervarix
HPV L1 prótein af gerð 6, 11, 16, 18, 31, 33, 45, 52 og 58 Gardasil
Lekandi
Smit og fylgikvillar
Lekandi orskast af bakteríunni Neisseria gonorrhoeae . Smit verður oftast við beina snertingu slímhúða við kynmök og getur valdið sýkingu í kynfærum, þvagrás, endaþarmi og hálsi. Bakterían getur einnig borist með sýktum vessa í augu og því getur barn smitast við fæðingu um sýktan fæðingarveg móður.
Helstu fylgikvillar lekandasýkingar hjá körlum eru eistnalyppu- og eistnabólga eða blöðruhálskirtilsbólga og hjá konum eggjaleiðara- og eggjastokksbólga.
Bakterían getur dreift sér víða um líkamann og valdið skaða en auk þess getur lekandi valdið ófrjósemi.
Algengustu einkenni
Karlar: bráð þvagrásarbólga með graftarkenndri útferð úr þvagrás og sviði eða óþægindi við þvaglát
Konur: oft einkennalausar en kunna að fá einkenni vegna leghálsbólgu sem getur valdið breyttri og aukinni útferð, kviðverkjum um neðanverðan kvið og milliblæðingum, einnig geta konur fengið einkenni þvagrásarbólgu sem geta valdið sviða eða óþægindum við þvaglát
Lekandi getur einnig valdið tárubólgu, sýkingu í endaþarmi og hálsi.
Lyf sem notuð eru við lekanda
Lyfin eru ýmist notuð í einlyfjameðferð eða með öðrum sýklalyfjum eftir þörfum einstaklings og eðli sýkingar.
Cefriaxonum Ceftriaxon Fresenius Kabi stungulyfs-/innrennslisstofn, 1 gCeftriaxon Fresenius Kabi innrennslisstofn, 2 gCeftriaxona Normon stungulyfs-/innrennslisstofn og leysir, 1000 mgCeftriaxona Normon innrennslisstofn, 2000 mg
Azithromycinum Azithromycin STADA mixtúruduft, 40 mg/mlAzithromycin STADA filmuhúðaðar töflur 500 mgAzithromicina Normon filmuhúðaðar töflur, 500 mgZitromax mixtúruduft, 40 mg/mlZitromax stofn fyrir innrennslisþykkni, 500 mgZitromax filmuhúðaðar töflur, 500 mg
Ciprofloxacinum Ciprofloxacin Alvogen filmuhúðaðar töflur, 250 mg og 500 mgCiprofloxacin Navamedic innrennslislyf, 2 mg/mlSíprox töflur, 250 mg og 500 mg
Gentamicinum Gentamicin B. Braun innrennslislyf, 1 mg/ml og 3 mg/ml
Doxycyclinum Doxycyklin EQL Pharma töflur, 100 mgDoxylin töflur, 100 mg
Metronidazolum Flagyl filmuhúðaðar töflur, 400 mgMetronidazol Actavis filmuhúðaðar töflur, 250 mg og 500 mg
Sárasótt
Smit og fylgikvillar
Sárasótt orsakast af bakteríunni Treponema pallidum og skiptist í áunna og meðfædda sárasótt. Smit verða milli manna með kynmökum, við blóðsmit og frá móður til fósturs. Áunnin sárasótt skiptist í snemmsárasótt og síðsárasótt.
Sjúkdómurinn getur verið alvarlegur og lífshættulegur en mögulegt er að vinna á honum með sýklalyfjum.
Algengustu einkenni
Snemmsárasótt, fyrsta stig: eymslalaust sár sem kemur oftast á kynfæri en getur komið við endaþarm eða í munn. Eymslalausar eitlastækkanir geta fylgt.
Snemmsárasótt, annað stig: brúnrauðar húðbreytingar, oft mest áberandi á bol en einnig í lófum og iljum. Mjög smitandi slímhúðarbreytingar eru einnig algengar. Einnig getur smitaður einstaklingur upplifað veikindi með hita, eitlastækkunum, lifrarbólgu, miltisstækkun, liðbólgum, taugaeinkennum og augneinkennum.
Aðrar gerðir sárasóttar þarf sérstakar greiningaraðferðir til að meta.
Lyf sem notuð eru við sárasótt
Benzathine penicillin Ekkert lyf er skráð og markaðssett á Íslandi með þessu innihaldsefni
Ceftriaxonum Ceftriaxon Fresenius Kabi stungulyfs-/innrennslisstofn, 1 gCeftriaxon Fresenius Kabi innrennslisstofn, 2 gCeftriaxona Normon stungulyfs-/innrennslisstofn og leysir, 1000 mgCeftriaxona Normon innrennslisstofn, 2000 mg
Doxycyclinum Doxycyklin EQL Pharma töflur, 100 mgDoxylin töflur, 100 mg
Procaine penicillin + probenecid Hvorugt innihaldsefnanna er til í skráðu og markaðssettu lyfi hérlendis
HIV
Smit og fylgikvillar
HIV er kynsjúkdómur sem orsakast af human immunodeficiency virus . Algengast er að smit verðiur við beina snertingu við kynmök (um leggöng, endaþarm eða munn). Aðrar smitleiðir eru með smituðu blóði eða líffærum, við blóðblöndun t.a.m. með menguðum nálum en börn geta einnig smitast í móðurkviði yfir fylgju eða í fæðingu.
Almennt hefur dregið úr nýgengi HIV í heiminum á undanförnum árum en fjöldi einstaklinga sem lifir með HIV aukist. Það skýrist m.a. af því að meðferðir við HIV hafa reynst árangursríkar við að draga úr smithættu auk þess að aðgengi hefur aukist að HIV-lyfjum sem tekin eru í forvarnarskyni.
HIV er ólæknandi og fylgir því þeim sem smitast alla ævi.
Algengustu einkenni
Einkennalaus í upphafi hjá hluta smitaðra en einkenni geta verið hiti, slappleiki, eitlastækkanir og nætursviti
Seinna geta komið fram eitlastækkanir í hálsi, þruska í munni, koki eða vélinda auk blóðflögufækkunar. Svæsin endurvakning á hlaupabóluveiru í formi ristils getur verið merki um veikleika í ónæmiskerfi einstaklings
Þegar ónæmiskerfið veikist frekar fer að bera á tækifærissýkingum og nokkrum tegundum krabbameina
Lyf sem notuð eru við HIV
Samsettar meðferðir geta m.a. innihaldið:
Atazanavirum Atazanavir Krka hörð hylki, 300 mg
Darunavirum Darunavir Medical Valley filmuhúðaðar töflur, 600 mg og 800 mgPrezista filmuhúðaðar töflur, 600 mg og 800 mg
Lamivudinum Epivir filmuhúðaðar töflur, 150 mg
Abacavirum Ziagen filmuhúðaðar töflur, 300 mg
Tenofovir disoproxil Viread filmuhúðaðar töflur, 245 mgVirofob filmuhúðaðar töflur, 245 mg
Emricitabinum Emtriva hörð hylki, 200 mg
Etravirinum INTELENCE töflur, 200 mg
Rilpivirinum EDURANT filmuhúðaðar töflur, 25 mg
Raltegravirum Isentress filmuhúðaðar töflur, 400 mg
Dolutegravirum Tivicay filmuhúðaðar töflur, 50 mg
Ziduvudinum og lamivudinum Combivir filmuhúðaðar töflur, 150 mg/300 mg
Lamivudinum og abacavirum Kivexa filmuhúðaðar töflur, 600 mg/300 mg
Tenofovirum dísóproxíl og emtricitabinum Emtricitabine/Tenofovir disoproxil Zentiva filmuhúðaðar töflur, 200 mg/245 mgTruvada filmuhúðaðar töflur, 200 mg/245 mg
Ziduvudinum, lamivudinum og abacavirum Trizivir filmuhúðaðar töflur, 300 mg/150 mg/300 mg
Emtricitabinum, tenofovirum disoproxil og efavirenzum Efavirenz/Emtricitabine/Tenofovir disoproxil Zentiva filmuhúðaðar töflur, 600 mg/200 mg/245 mg
Emtricitabinum, tenofovirum disoproxilum og rilpivirinum Eviplera fimuhuðaðar töflur, 200 mg/25 mg/245 mg
Emtricitabine, tenofovir disoproxil, elvitegravir og cobicistat Stribild filmuhúðaðar töflur, 150 mg/150 mg/200 mg/245 mg
Lamivudone, abcavir og dolutegravir Triumeq filmuhúðaðar töflur, 50 mg/600 mg/300 mg
Darunavir og cobicistat REZOLSTA filmuhúðaðar töflur, 800 mg/150 mg
Emtricitabine og tenofovir alafenamide Descovy 200 mg/25 mg og 200 mg/10 mg
Emtricitabine, tenofovir alafenamide, elvitegravir og cobicistat Genvoya filmuhúðaðar töflur, 150 mg/150 mg/200 mg/10 mg
Emtricitabine, tenofovir alafenamide og rilpivirine Odefsey filmuhúðaðar töflur, 200 mg/25 mg/25 mg
Emtricitabine, tenofovir alafenamide og bictegravir Biktarvy filmuhúðaðar töflur, 50 mg/200 mg/25 mg
Emtricitabine, tenofovir alafenamide, darunavir og cobicistat Symtuza filmuhúðaðar töflur, 800 mg/150 mg/200 mg/10 mg
Lamivudine og dolutegravir DOVATO filmuhúðaðar töflur, 50 mg/300 mg
