Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Drög að frumvarpi til umsagnar í samráðsgátt

18. febrúar 2025

Frumvarp heilbrigðisráðuneytisins er til breytingar á þrennum lögum, og er m.a. ætlað að skerpa á ákvæði í lyfjalögum um heimildir Lyfjastofnunar til að bregðast við lyfjaskorti

Heilbrigðisráðuneytið hefur kynnt til umsagnar drög að frumvarpi til breytingará þrennum lögum, lyfjalögum, lögum um lækningatæki, og lögum um dýralyf. Drögin hafa verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnir má senda í gáttina til og með 3. mars næstkomandi og eru þær birtar jafnóðum og þær berast.

Helstu breytingar eru þessar:

  • Læknir skal framkvæma skoðun áður en hann ávísar undanþágulyfi

  • Undanþága fyrir notkun undanþágulyfja fellur sjálfkrafa niður þegar lyf með markaðsleyfi verður fáanlegt.

  • Heimildir Lyfjastofnunar til að heimila lyfjafræðingum, þegar skortur er á markaðssettu lyfi, til að breyta lyfjaávísun í undanþágulyf verður felld á brott.

  • Lyfjastofnun veitt heimild til að bregðast við lyfjaskorti.

  • Skerpt á skyldum heildsöluleyfishafa að tilkynna um lyfjaskort.

  • Innleidd sérstök skylda heildsöluleyfishafa að tryggja jafna dreifingu lyfja.

  • Breytingar á ákvæðum um undanþágulyf.

  • Heimild fyrir lyfjafræðinga að ávísa bóluefnum vegna bólusetninga í apótekum.

  • Breytingar á ákvæðum um greiðsluþátttöku lyfja.

Sem fyrr segir má senda umsagnir í samráðsgáttina til og með 3. mars nk.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00