Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Breytt stjórnsýsluframkvæmd við útgáfu inn- og útflutningsleyfa fyrir eftirlitsskyld efni

27. júlí 2026

Breytingin tekur gildi 1. janúar 2027

Lyfjastofnun tilkynnir hér með um breytta stjórnsýsluframkvæmd við útgáfu inn- og útflutningsleyfa fyrir eftirlitsskyld efni, sem tekur gildi 1. janúar 2027.

Helstu breytingar: Leyfi stofnunarinnar munu gilda í fjóra mánuði frá útgáfudegi en ekki út almanaksárið, og verða leyfin bundin tilgreindu magni samkvæmt umsókn.

Þetta er í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum. Tilgreint er í 9. gr. reglugerðarinnar, að inn- eða útflutningsleyfi skv. 7. gr. gildir að jafnaði í fjóra mánuði nema annað sé tekið fram í leyfi Lyfjastofnunar.Samkvæmt 7. gr. reglugerðarinnar skulu þeir sem hyggjast flytja inn efni merkt D I eða D II í fylgiskjali II með reglugerðinni, hvort sem er á formi hráefnis eða lyfjaforma, sækja um innflutningsleyfi til Lyfjastofnunar í hvert sinn áður en pöntun fer fram. Í umsókn skal tilgreina:

  1. Nafn og heimilisfang umsækjanda.

  2. Nafn og heimilisfang seljanda/kaupanda.

  3. Heiti og magn efnis (INN nafn).

  4. Tilgang með notkun efnisins.

Með breyttri stjórnsýsluframkvæmd verður útgáfa inn- og útflutningsleyfa í samræmi við orðalag og kröfur reglugerðar nr. 233/2001. Aðilar eru hvattir til að kynna sér reglugerðina og tryggja jafnframt að umsóknir þeirra uppfylli framangreindar kröfur frá og með 1. janúar 2027.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00