Teigur - Dagdeild fíknimeðferðar
Efnisyfirlit
Þjónusta
Dagdeild fíknimeðferðar Teigur
er eining innan meðferðareiningar geð- og fíknisjúkdóma Landspítala. Meðferðin á Teigi er:
fimm vikna löng
mætt er á hverjum virkum degi frá klukkan 10-12
Á deildinni er lögð mikil áhersla á að greina og kortleggja sem best heildarvanda þeirra sem sækja þjónustuna og veita eftir fremsta megni meðferð við því sem talið er að hindrað geti einstaklinginn í að ná að byggja upp líf án vímugjafa.
Meðferðin á Teigi:
byggir á hugmyndafræði hugrænnar atferlismeðferðar þar sem bæði er unnið með vímuefnavandann og annan tilfinningavanda
er hópmeðferð þar sem sálfræðingar og áfengisráðgjafi sjá um dagskrá hóptímanna.
Auk þess hafa allir sinn einstaklingsmeðferðaraðila sem þeir hitta í vikulegum viðtölum meðan á meðferðinni stendur.
Ferlið á Teigi:
Beiðni um meðferð samþykkt
Fyrsta einstaklingsviðtal
Undirbúningshópur/grunnhópur: tvisvar í viku, klukkutíma í senn þar til röðin kemur að því að hefja meðferðina sjálfa, yfirleitt tvær til þrjár vikur
Dagdeildarmeðferð á Teigi: alla virka daga kl 10 – 12 í fimm vikur
Regluleg einstaklingsviðtöl samhliða hópmeðferðinni, bæði í undirbúningshóp og í dagdeildarmeðferðinni sjálfri.
Eftir meðferðina: vikulegur stuðningur í hóp í tólf vikur
Mikilvægt er að mæting sé góð í meðferðina svo hún komi að fullu gagni!
Tilvísanir og skilyrði fyrir meðferð
Deildin tekur við tilvísunum meðal annars frá bráðamóttökum Landspítala, öðrum deildum spítalans, öðrum heilbrigðisstofnunum, sjálfstætt starfandi fagaðilum, barnavernd og félagsþjónustu sveitarfélaga og Virk starfsendurhæfingu.
Skilyrði fyrir meðferð á Teigi er að hafa hætt notkun vímugjafa.
Stefnt er að áframhaldandi edrúmennsku.
Ekki er veitt fráhvarfsmeðferð á Teigi.
