Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Sjúkraþjálfun Grensás

Þjónusta

Sjúkraþjálfarar Grensási sinna sjúkraþjálfun á sólarhringsdeild, dagdeild og göngudeild.

Starfsemi sjúkraþjálfara á Grensási

Á Grensási fá einstaklingar endurhæfingu eftir slys eða alvarleg veikindi. Meðferð sjúkraþjálfara er einstaklingsmiðuð og byggir á niðurstöðu skoðunar og greiningu.

Sólarhringsdeild og dagdeild

Markmið meðferðarinnar er að bæta færni, auka þekkingu og stuðla að heilsueflingu. Meðferðin felur í sér:

  • Einstaklingsþjálfun

  • Hópæfingar

  • Fræðslu og ráðgjöf til sjúklings og aðstandenda

  • Heimilisathuganir

  • Val og aðlögun hjálpartækja

Við útskrift veita sjúkraþjálfarar aðstoð við að skipuleggja áframhaldandi sjúkraþjálfun eða heilsurækt út frá þörfum hvers og eins. Nánari um sólarhringsdeild Grensás og dagdeild Grensás.

Göngudeild

Á göngudeild fá einstaklingar sem þurfa sérhæfða meðferð eða ráðgjöf þjónustu. Þar er einnig boðið upp á prófun og útlán á rafspelkum. Nánar um göngudeild Grensás.

Hópþjálfun á Grensási

Heilsurækt fyrir fólk:

  • með mænuskaða. Æfingar undir leiðsögn sjúkraþjálfara mánudaga og miðvikudaga frá 14:45 til 15:35.

  • sem hefur fengið heilablóðfall. Æft undir leiðsögn sjúkraþjálfara þriðjudaga og fimmtudaga frá 16 til 17.