Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Meðgönguvernd, fósturgreining og bráðaþjónusta kvennadeilda

Þjónusta

Sérhæfð þjónusta fyrir konur með áhættuþætti eða frávik á meðgöngu

Einnig ef upp koma vandamál fyrstu tvær vikurnar eftir fæðingu.

Við biðjum skjólstæðinga deildarinnar að hafa eftirfarandi í huga:

  • Vinsamlegast komið ekki með börn í ómskoðanir.

  • Aðeins einn aðstandi getur verið viðstaddur ómskoðanir.

  • Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum.

  • Myndatökur eru ekki leyfðar.

  • Virða friðhelgi einkalífs og ræða ekki mál sem aðrir skjólstæðingar gætu heyrt.

Fósturgreining

Á fósturgreiningu eru gerðar fósturskoðanir á meðgöngu;

  • staðfesting þungunar

  • 11-14 vikna fósturskimun

  • 19-20 vikna fósturskimun

  • vaxtarmælingar

  • flæðismælingar

  • tekin legvatnssýni og fylgjuvefssýni.

  • Sjá nánar um Fósturgreiningardeild.

Meðgönguvernd

Konur með áhættuþætti á meðgöngu fá sérhæfða meðgönguvernd á Landspítala samkvæmt tilvísun frá fagfólki.
Almenn meðgönguvernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum.
Sjá nánar á Heilsuveru.

Dagdeild

Er fyrir konur sem þurfa aukið eftirlit eða sérhæfða meðferð vegna vandmála sem upp geta komið á meðgöngu og/eða fyrstu tvær vikurnar eftir fæðingu.

Dæmi: Háþrýstingur, meðgöngueitrun, vaxtarseinkun barns, minnkaðar hreyfingar, vökva- og lyfjagjafir, framköllun fæðingar og ytri vendingar vegna sitjandi stöðu barns.

Bráðaþjónusta

Ef upp koma óvænt vandamál á meðgöngu eða fyrstu tvær vikurnar eftir fæðingu er hægt að leita á deildina í samráði við fagfólk í heilsugæslu. Ljósmóðir sinnir símaráðgjöf og metur þörf fyrir eftirlit og meðferð.

Dæmi: Minnkaðar fósturhreyfingar, blæðing, vísbending um meðgöngueitrun eða önnur alvarleg heilsufarsvandamál.