Lyflækningadeild B7
Efnisyfirlit
Þjónusta
Deildin er 19 rúma legudeild og þar fer fram greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráð lyflæknisfræðileg vandamál sem krefjast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Flestir sjúklingar koma frá bráðamóttöku en einnig frá gjörgæslu og göngudeildum spítalans.
Innlagnir geta átt sér stað allan sólarhringinn og útskriftir fara fram alla daga. Umönnun er veitt allan sólarhringinn eftir þörfum hvers og eins, en annasamast er á morgnana þegar sinnt er persónulegri umhirðu, farið í stofugang og útskriftir undirbúnar.
Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga og aðstandendur og að veita skýrar og aðgengilegar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.
Það er leyfilegt að nota farsíma á deildinni, en vinsamlega hafið símann á hljóðlausri stillingu og sýnið öðrum sjúklingum tillitssemi þegar talað er í síma. Við biðjum alla skjólstæðinga okkar einnig um að virða einkalíf annarra sjúklinga og ræða ekki um það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi.
