Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Þjónusta

Lungnadeildin sérhæfir sig í greiningu, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráð og langvinn vandamál í öndunarfærum.

Lungnadeild er fyrir:

  • Sjúklinga með bráð lungnavandamál

  • Einstaklinga með langvinna lungnasjúkdóma

  • Þau sem glíma við önnur vandamál í öndunarfærum

  • Sjúklinga sem þurfa meðferð og hjúkrun

Á deildinni fer fram:

  • Greining og meðferð á bráðum og langvinnum lungnasjúkdómum sem og öðrum sjúkdómum

  • Hjúkrun og eftirlit fyrir sjúklinga með alvarleg vandamál, sér í lagi öndunarvandamál

  • Sérhæft eftirlit á hágæslustofum fyrir mikið veika sjúklinga sem þurfa nákvæma vöktun

Um deildina

  • 19 rúma legudeild, 9 rými með síritum og tvær sérútbúnar hágæslustofur

  • Flestir sjúklingar koma frá bráðamóttöku eða gjörgæslu

  • Dvalartími sjúklinga getur verið bæði langur og stuttur eftir atvikum

Áherslur

  • Fagleg og góð þjónusta

  • Virðing og umhyggja

  • Góð samskipti og fræðsla til sjúklinga og fjölskyldna þeirra

  • Veita skýrar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð og batahorfur