Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Legudeild geðrofssjúkdóma

Þjónusta

Legudeild geðrofssjúkdóma er 16 rúma legudeild sem sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Á deildinni eru 10 rúm ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 rúm ætluð til endurhæfingar.

Áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu þar sem líffræðilegir, sálrænir og félagslegir þættir eru greindir til að skilja og takast á við bráða og langvinna sjúkdóma.

Meðferðarnálgun

  • Er sérsniðin að þörfum og getu hvers einstaklings og byggir á batamiðaðri þjónustu.

  • Markmið er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm.

  • Leitað er eftir samvinnu við nánustu aðstandendur í samráði við sjúkling og þeim boðinn stuðningur á meðan meðferð stendur.