Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Þjónusta

Göngudeild hjartabilunar er fyrir einstaklinga sem hafa greinst með hjartabilun og hefur verið vísað á deildina til sérhæfðs mats, eftirlits og meðferðar.

Markmið meðferðar

  • Meta og meðhöndla einkenni hjartabilunar og fyrirbyggja versnun.

  • Veita fræðslu til að auka skilning á sjúkdómnum og meðferð.

  • Styðja við sjálfsumönnun og lífsstílsbreytingar.

  • Efla öryggiskennd og bæta lífsgæði.

Eftirlit og meðferð

  • Reglulegar heimsóknir eftir þörfum hvers og eins.

  • Einnig veitt ráðgjöf í síma eða í samvinnu við aðra meðferðaraðila.

  • Við eftirlit er metin líðan, gerð líkamsskoðun og mælingar, farið yfir lyfjameðferð og gerðar breytingar ef þarf.

  • Fræðsla og stuðningur veittur eftir þörfum, ásamt mati á þjónustuþörf (t.d. heimahjúkrun).

  • Þegar ástand er orðið stöðugt er áframhaldandi eftirlit í höndum hjartalækna eða heimilislækna.

Ítarefni