Rafrænar bókanir í brjóstaskimun á brjóstamiðstöð Landspítala
21. október 2026
Brjóstamiðstöð Landspítala sér um skimun og greiningu á brjóstakrabbameini á landsvísu. Miðstöðin veitir heildræna þjónustu fyrir einstaklinga með brjóstamein og þau sem eru í aukinni áhættu að þróa með sér brjóstakrabbamein.

Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið meðal kvenna á Íslandi og hefur nýgengi þess aukist jafnt og þétt á undanförnum áratugum. Árið 2025 nam hlutfall brjóstakrabbameins 28% allra greindra krabbameina. Batahorfur hafa aukist og dánartíðni hefur lækkað á síðari árum vegna árangursríkrar snemmtækrar greiningar og framfara í meðferð.
Brjóstaskimun er umfangsmikið lýðheilsuverkefni hvað varðar forvarnir og snemmgreiningar en árið 2025 var 65% þátttaka í brjóstaskimun. Allar konur á aldrinum 40-74 ára með lögheimili á Íslandi fá boðsbréf í skimun fyrir brjóstakrabbameini. Aldurshópurinn 40-69 ára fær boðsbréf á tveggja ára fresti og aldurshópurinn 70-74 ára á þriggja ára fresti. Árið 2025 voru 78.002 konur á skimunaraldri á Íslandi og voru þá send 34.112 boð í brjóstaskimun.
Brjóstaskimun fer fram á brjóstamiðstöð Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Einnig rekur brjóstamiðstöðin brjóstaröntgen farandtæki og þjónustar þannig landsbyggðina. Allar myndatökur sem framkvæmdar eru með farandtækinu eru í höndum geislafræðinga frá brjóstamiðstöðinni sem tryggir samræmda framkvæmd skimunar óháð staðsetningu.

Til mikils að vinna að einfalda bókanir í brjóstaskimun
Umfang brjóstaskimana er mjög mikið og skipulagið flókið. Það eru mörg umbótatækifæri möguleg til þess að einfalda ferlið í kringum brjóstaskimanir. Þar má nefna tímabókanir en fram að þessu hefur eingöngu verið hægt að bóka tíma í brjóstaskimun símleiðis eða með tölvupósti. Slíkt fyrirkomulag hefur verið mjög tíma- og mannaflafrekt, en að jafnaði hafa tveir móttökuritarar í fullu starfi á brjóstamiðstöðinni sinnt öllum tímabókunum. Þetta fyrirkomulag hefur einnig takmarkað sveigjanleika fyrir notendur þjónustunnar og falið í sér umtalsverða handvirka umsýslu.
Til þess að einfalda form tímabókana og bjóða upp á fleiri valmöguleika fyrir notendur þjónustunnar ákvað brjóstamiðstöðin að þróa og innleiða stafræna bókunarlausn fyrir brjóstaskimun. Verkefnið var unnið í samstarfi við nýþróun hjá stafrænni framþróun á Landspítala. Tilgangur verkefnisins var að koma til móts við kröfur og væntingar notenda þjónustunnar og veita þeim þannig möguleika á að bóka og breyta tímum sínum sjálf, óháð opnunartíma brjóstamiðstöðvar.
Í eftirfarandi myndbandi má fá leiðbeiningar um hvernig bóka á tíma í brjóstaskimun í Landspítalaappinu.
Fjöldi fyrirtækja fjármagnaði verkefnið
Margar leiðir voru skoðaðar og niðurstaðan varð sú að nota Landspítalaappið við rafrænar bókanir í brjóstaskimun. Greiningarvinnan leiddi m.a. í ljós að verkefnið yrði tímafrekt og kostnaðarsamt hvað varðar forritunarvinnu hjá stafrænni framþróun vegna samþættingavinnu og áskorana við myndgreiningakerfið (AGFA). Því ákvað brjóstamiðstöðin að leita til fyrirtækja um fjármögnun verkefnisins.
Haustið 2024 stóð Íslandsbanki fyrir fjáröflun í samvinnu við brjóstamiðstöðina og Krabbameinsfélagið. Það voru 42 fyrirtæki víðsvegar um landið sem lögðu fram fjármagn í verkefnið að upphæð 20,5 miljónir. Styrkurinn var afhentur í byrjun árs 2025 og verkefnið var þá að fullu fjármagnað.
Haustið 2025 voru gerðar fyrstu prófanir með raunnotendum á rafrænum bókunum í Landspítalaappinu. Eftir nokkrar ítranir og lagfæringar var loksins hægt að bjóða öllum konum sem hafa fengið boðsbréf í brjóstaskimun að bóka tíma á brjóstamiðstöð Landspítala í gegnum Landspítalaappið. Það er í lokavinnslu að konur geti einnig bókað tíma í brjóstaskimun á Sjúkrahúsinu á Akureyri eða í farandröntgentækið í gegnum Landspítalappið.

40% bóka tíma í skimun í gegnum Landspítalaappið
Árangur verkefnisins er mjög góður, en í dag eru rúmlega 40% af þeim konum sem fá boð í skimun sem bóka tíma í gegnum Landspítalaappið. Allar nánari upplýsingar um tímabókanir má finna á brjostaskimun.is
Næsti áfangi verkefnisins er innleiðing forbókaðra tíma í brjóstaskimun. Markmiðið með þeim áfanga er að auka enn frekar aðgengi að þjónustunni. Áður en ráðist verður í það verkefni er nauðsynlegt að vinna frekari greiningu og undirbúning til að tryggja að framkvæmdin verði skilvirk og í samræmi við þarfir notenda og starfsemi þjónustunnar.
