Nýtt æðaþræðingartæki umbyltir meðferð
2. nóvember 2026
Í haust tók inngripsröntgen- og æðaþræðingadeild Landspítala í notkun nýtt æðaþræðingartæki.

Um er að ræða svokallað biplane-tæki sem tekur myndir í tveimur hornréttum plönum á sama tíma. Slík tækni er aðallega notuð við æðaþræðingar og inngrip á heila, svo sem æðaþræðingu vegna bráðs blóðþurrðarslags eða inngrips vegna æðagúls í heila. Um er að ræða byltingu í meðferð þessara sjúkdóma þar sem nauðsynlegt er að hafa myndir í tveimur mismunandi plönum á sama tíma til að veita þessa meðferð með eins öruggum hætti og hægt er. Þannig má segja að um sé að ræða byltingu fyrir þennan sjúklingahóp sem vex með ári hverju.

Stofuna má einnig nota svipað og hefðbundna æðaþræðingastofu en þá er einungis annar myndgreiningararmurinn notaður og fást þá myndir í einu plani en þannig mun tækið ekki eingöngu verða nýtt við inngrip á heila. Fram til þessa hefur einungis eitt æðaþræðingatæki verið til umráða fyrir deildina og því er um að ræða talsverða aukningu í afkastagetu deildarinnar þegar tækjum fjölgar úr einu í tvö. Þetta reynist nauðsynlegt þar sem verkefnum inngripsröntgen- og æðaþræðingadeildar fer fjölgandi og þau verða flóknari með hverju árinu.

Fara þurfti í umfangsmiklar framkvæmdir til að undirbúa komu æðaþræðingartækisins sl. sumar. Skoða má myndir frá þeim hér.










