Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Ný hjarta- og æðaþræðingastofa tekur á sig mynd

25. júní 2026

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir viðamiklar breytingar á 4. hæð í Fossvogi þar sem fyrrum skrifstofurými bæklunarskurðlæknadeildar voru rýmd og þeim breytt í æðaþræðingarstofu og stjórnrými. Framkvæmdirnar voru gerðar til að undirbúa komu nýs Philips Azurion tækis sem kom í hús laugardaginn 13. júní sl.

Framkvæmdirnar hafa verið mikið púsl. Til þess að stækka rýmið og aðlaga það nýja tækinu þurfti að rífa eldri létta veggi og fjarlægja hluta af burðarvegg. Á meðfylgjandi myndum má sjá iðnaðarmenn á fullu fyrir skömmu við múrbrot og niðurrif. Einnig sést mikilvægur áfangi þar sem verið er að koma fyrir öflugum stálbita (HEM-bita) í loftið, sem tekur við álaginu af burðarveggnum sem var sagaður í burtu.

Tæknilegar kröfur og næstu skref

Hönnun og framkvæmd svona sérhæfðra stofa fylgja ströngum tæknistöðlum til að tryggja fyllsta öryggi:

  • Burðarþol og festingar

    Hluti tækisins og skjáarma hangir í loftinu. Auk bitans sem heldur uppi húsinu sjálfu þarf að setja upp sérstakt stálgrindarkerfi (Unistrut) í loftið fyrir hreyfanlegan tækjabúnað.

  • Geislavörn

    Veggir rýmisins eru klæddir með blýi til þess að tryggja geislavörn gegn röntgengeislum.

  • Loftræsting

    Búnaður er uppfærður til þess að uppfylla kröfur um hreinleika og loftflæði í aðgerðarýmum.

Hvað tekur við?

Þegar tækið kom í hús þann 13. júní sl. lauk þessum fyrsta byggingafasa og við tekur flókinn uppsetningar- og prófunarfasi á tækinu sjálfu. Í kjölfarið er stefnt á færslu á tæknirými á núverandi æðaþræðingarstofu við hliðina, svo hægt sé að samræma og uppfæra starfsemina í heild sinni.

Verkefnið hefur krafist mikilla tilfærslna á skrifstofum og starfsfólki á hæðinni, og er því þakkað sýnt æðruleysi og þolinmæði á meðan unnið er í lifandi spítalaumhverfi.