Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Þjónusta

DAM (díalektísk atferlismeðferð) teymið

DAM-teymið er þverfaglegt teymi sem veitir díalektíska atferlismeðferð (DAM) fyrir einstaklinga með alvarlegan tilfinningavanda. Meðferðin byggir á gagnreyndri meðferð Marsha Linehan og felur í sér aukna meðvitund um hugsanir og tilfinningar (núvitund), tilfinningastjórn, samskiptafærni og streituþol.

Markmið meðferðar

Efla samskiptafærni, tilfinningaviðbrögð, hugsanir og hegðun í daglegu lífi. Markmið meðferðar er að stuðla að bættri samskiptafærni, tilfinningaviðbrögðum, hugsunum og hegðun í tengslum við vandamál í daglegu lífi.

Lengd meðferðar

Meðferðin er sex mánuðir og samanstendur af hóptímum einu sinni í viku og einstaklingsviðtölum einu sinni í viku. Aðkoma fagfólks er einstaklingsmiðuð.

Aðstandendafræðsla

Í boði fyrir aðstandendur skjólstæðinga sem eru við það að ljúka meðferð. Sjúklingar fá upplýsingar um fræðsluna undir lok meðferðar.

Þættir DAM-meðferðar

Núvitund

  • Markmið núvitundar er að verða meðvitaðri um hugsanir, tilfinningar og líkamleg viðbrögð.

  • Njóta þess sem er og lifa lífinu með aukinni ánægju.

Streituþol

  • Aðferðir til að sefa erfiðar tilfinningar um stundarsakir svo hægt sé að beita hjálplegri leiðum til að ná tökum á streitu.

  • Þola við í erfiðum aðstæðum og tilfinningum án þess að gera þær verri og læra að gangast við raunveruleikanum eins og hann er.

Tilfinningastjórn

  • Fræðsla um tilfinningar, bera kennsl á eigin tilfinningar, hlutverk þeirra og hvernig þær hafa áhrif á líkama okkar og hegðun.

  • Aðferðir til að vinna með óvelkomnar tilfinningar.

Samskiptafærni

  • Auka færni í samskiptum og vinna með samskiptaerfiðleika.

  • Byggja upp og rækta tengsl.

Vefsíður á ensku: