Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Þjónusta

Brotaendurhæfing

Markmið endurhæfingar er að einstaklingar nái bættri hreyfigetu, fái aukið öryggi og geti sjálfstætt leyst af hendi flestar athafnir daglegs lífs. Hvatt er til sjálfshjálpar og þátttöku í daglegum athöfnum og máltíðum.

  • Sjúklingar bera ábyrgð á eigin þjálfun, taka þátt í gönguferðum og sinna æfingum sem þeim hafa verið settar fyrir. Mikilvægt er að nýta þjálfunina vel og æfa oft yfir daginn.

  • Sjúklingar eru sendir í nauðsynlegar rannsóknir og leitað er ráðgjafar frá öðrum sérfræðingum Landspítala ef þarf.

  • Legutími er oft 2 til 3 vikur og að hámarki 4 vikur. Útskrift er miðuð við fyrsta tækifæri út frá ástandi sjúklings.

  • Sjúklingar eru hvattir til að vera á fótum, klæða sig í eigin föt og borða í matsalnum.

  • Aðstandendur eru hvattir til að fara út af deild, í gönguferðir, bíltúra eða heimsóknir heim með samþykki starfsfólks.