Bráðateymi Barna og unglingageðdeildar
Efnisyfirlit
Þjónusta
Markmið þjónustu
Bráðateymi Barna- og unglingageðdeildar er sérhæft teymi sem hefur það hlutverk að meta alvarleika bráðs geðræns vanda barna og unglinga. Bráðteymið tekur á móti símtölum á dagvinnutíma, þar sem metin er þörf á íhlutun.
Ef talin er þörf á tafarlausri íhlutun fer fram frekara mat á vanda barns/unglings í bráðateymi barna og unglingageðdeildar kemur barn/unglingur ásamt forsjáraðilum í viðtal. Í samráði við forsjáraðila er þá gerð áætlun um þörf á íhlutun, á barna og unglingageðdeild eða í nærumhverfi.
Ef talin er þörf á að tryggja öryggi barns/unglings er tekin afstaða til hvort bráðainnlögn á legudeild barna og unglingageðdeildar sé nauðsynleg.
Bráðateymi sendir skriflegar upplýsingar um niðurstöðu bráðamats til heilsugæslulæknis og annarra meðferðaraðila í heimabyggð að loknum afskiptum barna og unglingageðdeildar.
