Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Þjónusta

Bráðamatsdeild er sérhæfð matsdeild fyrir fullorðna með bráð veikindi. Á deildinni vinnur heilbrigðisstarfsfólk saman að því að meta ástand, framkvæma rannsóknir, veita meðferð og leggja mat á hvaða næstu skref henta best í meðferð hvers sjúklings.

Tilvísun á Bráðamatsdeild þýðir ekki endilega innlögn á sjúkrahús. Margir sjúklingar ljúka mati og meðferð án þess að þurfa að dvelja yfir nótt. Aðrir þurfa stutta dvöl til eftirlits eða meðferðar áður en þeir fara heim eða flytjast á viðeigandi stað.

Dvöl á Bráðamatsdeild

Aðrar algengar spurningar

Spurðu ef eitthvað er óljóst

Það er mikilvægt að þú skiljir umönnun þína og hvað gerist næst. Meðan á dvölinni stendur munt þú hitta ólíka heilbrigðisstarfsmenn sem vinna saman að umönnun þinni og deila nauðsynlegum upplýsingum sín á milli.

Ekki hika við að spyrja starfsfólk ef eitthvað er óljóst eða ef þú hefur spurningar um:

  • Veikindi þín

  • Rannsóknir

  • Meðferð

  • Næstu skref

  • Heimferð