Bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma
Efnisyfirlit
Þjónusta
Bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma 32A er 16 rúma legudeild sem sérhæfir sig í þjónustu fyrir einstaklinga með tvíþættan vanda; alvarlegan geð- og vímuefnavanda.
Áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu þar sem líffræðilegir, sálrænir og félagslegir þættir eru greindir til að skilja og takast á við báða sjúkdómana.
Meðferðarnálgun
Meðferðarnálgun er sérsniðin að þörfum og getu hvers einstaklings og byggir á batamiðaðri- og skaðaminnkandi hugmyndafræði auk áhugahvetjandi samtala.
Mikilvægar staðreyndir:
Markmið innlagna: Að ná lágmarks jafnvægi til að nýta önnur meðferðarúrræði, ef vilji er til þess.
Meðallegutími: Um fimm dagar.
Samstarf: Deildin vinnur í samvinnu við aðrar einingar geðþjónustunnar, svo sem göngudeild geð- og fíknisjúkdóma, eftir þörfum hvers og eins.
Vímuefnanotkun: Einstaklingum er ekki heimilt að nota vímuefni eða önnur lyf en þau sem gefin eru á deildinni meðan á innlögn stendur.
Fráhvarfsmeðferð: Veitt eftir þörfum og mati fagfólks. Fráhvarfsmeðferð stendur til boða öllum, óháð því hvort viðkomandi stefnir á líf án vímuefna eða velur að halda áfram notkun.
