Velsældarþing 2027
15. apríl 2027
Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, Austurbakka 2, 101 Reykjavík

Takið daginn frá
Velsældarþing 2027 – Alþjóðavettvangur um velsældarhagkerfi (Wellbeing Economy Forum) verður haldið í Hörpu dagana 15. og 16. apríl 2027. Þetta er fimmta árið sem Velsældarþingið er haldið.
Verndari Velsældarþings er Halla Tómasdóttir forseti Íslands en forseti þingsins er Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis.
Yfirskrift þingsins er „Together for Wellbeing - 𝐓𝐡𝐞 𝐏𝐨𝐰𝐞𝐫 𝐨𝐟 𝐂𝐨𝐧𝐧𝐞𝐜𝐭𝐢𝐧𝐠 𝐏𝐞𝐨𝐩𝐥𝐞, 𝐏𝐨𝐥𝐢𝐜𝐲 𝐚𝐧𝐝 𝐏𝐥𝐚𝐧𝐞𝐭.“ eða „Saman aukum við velsæld – máttur tengsla milli fólks, stefnumótunar og náttúru“.
Tengsl eru grundvallarþáttur í velferð okkar, hvort sem um er að ræða tengsl okkar við annað fólk og náttúruna eða samstarf þvert á samfélög, geira og kynslóðir. En hvernig getum við nýtt þessi tengsl til að skapa innihaldsríka umræðu, sameiginlegan skilning og samstilltar aðgerðir?
Velsældarþingið er skipulagt af embætti landlæknis sem hluti af Evrópuverkefninu JA PreventNCD-verkefninu, sem styrkt er af Evrópusambandinu, en Ísland er eitt þeirra landa sem gegna forystuhlutverki í verkefninu.
Skráning og nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara verður kynnt á næstu mánuðum á síðu Velsældarþingsins og á samfélagsmiðlum.