Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Málþing þar sem Miðpunktur - samstarfsvettvangur rannsókna í sjálfsvígsfræðum verður formlega stofnaður

22. september 2026

09:00 til 15:30

Háskólinn á Akureyri, Norðurslóð 2, 600 Akureyri

Lífsbrú. Miðstöð sjálfsvígsforvarna. Kennimark

Þriðjudaginn 22. september verður haldið málþing við Háskólann á Akureyri þar sem Miðpunktur – samstarfsvettvangur rannsókna í sjálfsvígsfræðum verður formlega stofnaður. Þar kemur saman fræðafólk, fagfólk og stúdentar til að ræða rannsóknir, reynslu og þróun á sviði sjálfsvígsfræða og sjálfsvígsforvarna.

Kallað er eftir ágripum til og með 4. ágúst 2026.

Fræðafólk, rannsakendur og stúdentar eru hvattir til að senda inn erindi sem byggja á rannsóknum eða reynslu af vettvangi.

Sérstaklega er óskað eftir erindum um:

  • sjálfsvígshegðun og áhrifaþætti

  • sjálfsvígsforvarnir og inngrip

  • lýðheilsu og faraldsfræði

  • klínískar rannsóknir og meðferð

  • gagnagreiningu og mælitæki

  • reynslu úr þjónustu og samfélagslegum úrræðum