Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Kynning á nýrri skýrslu: Fyrstu 1.000 dagarnir á Norðurlöndunum

11. maí 2026

11:00 til 12:30

Rafrænn viðburður

Mynd. Barn í rólu. Fyrstu 1.000 dagar barnsins

Embætti landlæknis á fulltrúa í Norrænu tengslaneti um fyrstu 1000 daga barnsins en þann 11. maí næstkomandi verður skýrslan The First 1000 Days in the Nordics: Identifying Gaps and Needs to Strengthen Psychosocial Wellbeing gefin út. Í skýrslunni er fjallað um hvað vantar og hvaða þörfum þurfi að mæta til að styðja við sálfélagslega vellíðan barna og fjölskyldna þeirra.

Skýrslan verður kynnt á rafrænum viðburði kl. 11:00- 12:30 að íslenskum tíma. Auk kynningar á helstu niðurstöðum skýrslunnar verða pallborðsumræður og spurningum frá áhorfendum svarað.

Norræna tengslanetið vinnur að því að efla þekkingu og samstarf um þroska og vellíðan barna frá meðgöngu og fram til tveggja ára aldurs. Skýrslan var unnin af Itla Children’s Foundation í Finnlandi í samstarfi við Norræna tengslanetið, með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.