Verkefnisstjóri á sviði heilbrigðisupplýsinga
2. mars 2023
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða verkefnisstjóra til starfa á heilbrigðisupplýsingasviði.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Landlæknir logo - Fréttamyndir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða öflugan verkefnisstjóra til starfa á heilbrigðisupplýsingasviði. Sviðið ber ábyrgð á greiningu gagna úr heilbrigðisskrám sem eru gagnasöfn á landsvísu. Skrárnar veita m.a. stuðning við lögbundin hlutverk embættisins og við stefnu og aðgerðir heilbrigðisyfirvalda. Sviðið ber m.a. ábyrgð á greiningu gagna er varða heilsufar, áhrifaþætti heilsu, dánarmein, fæðingar, lyfjanotkun og starfsemi heilbrigðisþjónustu auk miðlun tölulegra upplýsinga þar um.
Frekari upplýsingar um starfið, helstu verkefni og hæfniskröfur má finna á Starfatorgi.
Nánari upplýsingar veita:
Sigríður Haraldsd. Elínardóttir sviðsstjóri, sigridur.haraldsd.elinardottir@landlaeknir.is
Þórgunnur Hjaltadóttir mannauðsstjóri, thorgunnur.hjaltadottir@landlaeknir.is