Velsældarþingið, Wellbeing Economy Forum, hefst í Hörpu á morgun
7. maí 2025
Velsældarþingið, Wellbeing Economy Forum, hefst í Hörpu á morgun. Embætti landlæknis í samstarfi við fjölda innlenda og erlenda aðila stendur fyrir þinginu sem fer fram dagana 8. og 9. maí.

Ísland hefur verið leiðandi á sviði velsældarmála á alþjóðavettvangi og hefur ríkisstjórn Íslands meðal annars innleitt 40 velsældarvísa með það að markmiði að auka velsæld og lífsgæði og um leið seiglu samfélagsins til að takast á við krefjandi áskoranir. Velsældarþingið er haldið í samstarfi við fjölmargar innlendar og alþjóðlegar stofnanir og samstarfsaðila, þar á meðal forsætisráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, Alþjóðlegu heilbrigðismálastofnunina, OECD, UNESCO, WEGo, WEAll, Festu – Miðstöð um sjálfbærni, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga. Velsældarþingið er hluti af evrópska verkefninu JA PreventNCD, sem er styrkt af Heilbrigðisáætlun Evrópusambandsins.
Verndari Velsældarþingsins er forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og fundarstjóri er Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis. Á þinginu verður fjallað um hvernig hægt sé að nota velsældarviðmið við opinbera stefnumótun og í atvinnulífinu, hvernig mælikvarðar geta betur endurspeglað raunverulega líðan og lífsgæði fólks og hvaða hlutverk stjórnvöld, atvinnulíf og almenningur gegna í uppbyggingu velsældarhagkerfis. Auk erinda verða vinnustofur og kynningar á verkfærum og verkefnum frá þátttökuríkjum og stofnunum.
„Velsældarhagkerfi snýst um að setja velsæld fólks og jarðarinnar í forgrunn og mæla það sem raunverulega skiptir máli – eins og heilsu, menntun, félagslegt öryggi og sjálfbærni – en ekki einungis hagvöxt. Við þurfum að beina sjónum að þeim þáttum sem hafa bein áhrif á lífsgæði fólks og samfélagslega velferð. Stórar áskoranir eins og hlýnun jarðar og kulnun fólks krefjast þess að við skoðum á hvaða vegferð við erum sem samfélag. Á Velsældarþinginu í Hörpu ræðum við hvernig við getum gefið þeim gildum sem stuðla að velsæld meira vægi í okkar hagkerfi þannig að hagvöxtur leiði til aukinna lífsgæða en sé ekki lokamarkmiðið í sjálfu sér. Það er forsenda raunverulegrar velsældar – fyrir okkur í dag og komandi kynslóðir,“ segir Dóra Guðrún Guðmundsdóttir.
Alþjóðlegir sérfræðingar og leiðtogar flytja erindi
Á Velsældarþinginu taka þátt margir af fremstu sérfræðingum heims á sviði velsældarhagkerfis. Meðal þeirra sem flytja erindi eru: Gary Gillespie, aðalhagfræðingur skosku ríkisstjórnarinnar, Mariana Mazzucato, prófessor og höfundur bókarinnar „Value of Everything“, Kate Raworth, höfundur Doughnut Economics, Romina Boarini, forstöðumaður OECD WISE-setursins, Sandrine Dixson-Declève, formaður Earth4All og sendiherra Club of Rome, Ilona Kickbusch, stofnandi og forstjóri, Global Health Center, Kira Fortune, WHO, Stewart Wallis og Michael Weatherhead, Wellbeing Economy Alliance, Patricia Scotland, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samveldisríkjanna, Lorenzo Fioramonti, fyrrum menntamálaráðherra Ítalíu, Elva Rakel Jónsdóttir, forstjóri Festu, Caroline Costongs, framkvæmdastjóri EuroHealthNet, Gustavo Merino, UNESCO og fulltrúar frá WEGo-ríkjunum: Íslandi, Skotlandi, Wales, Finnlandi og fleiri.
Dagskrá og nánari upplýsingar má finna á vef Velsældarþingsins.
Frekari upplýsingar
Elín Hirst, verkefnastjóri - 899-9359
elin.hirst@landlaeknir.is