Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Úttekt embættis landlæknis á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

17. febrúar 2026

Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, ber embætti landlæknis að fylgjast með gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustunnar og stuðla að umbótum. Liður í slíku eftirliti eru úttektir á heilbrigðisstofnunum og við þær hefur embættið meðal annars til hliðsjónar Áætlun um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu frá 2019 – 2030.

Á vormánuðum 2025 fór fram úttekt embættis landlæknis á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVest). Tilefni úttektarinnar var reglubundið eftirlit embættisins en jafnframt lágu fyrir upplýsingar um ófullnægjandi mönnun lækna á HVest.

Úttektin náði til sjúkrahúss- og heilsugæsluþjónustu heilbrigðisumdæmisins með áherslu á stærstu starfsstöðvar umdæmisins, það er á Ísafirði og Patreksfirði.

Í úttektinni var stuðst við lög og reglugerðir og ýmis opinber gögn. Aflað var gagna um starfsemina frá stjórnendum HVest og einnig voru skoðuð fyrirliggjandi gögn hjá embætti landlæknis, það er starfsemisupplýsingar, ábendingar, kvartanir og tilkynningar um alvarleg atvik.

Fulltrúar embættisins heimsóttu HVest í maí og júní 2025 þar sem húsnæði sjúkrahússins og heilsugæslunnar á Ísafirði var skoðað og einnig heilsugæsla og hjúkrunar- og legudeild á Patreksfirði. Fulltrúar embættisins tóku viðtöl við starfsfólk HVest á Ísafirði og á Patreksfirði.

Embættið beinir bæði ábendingum og tilmælum til HVest. Ábendingar taka til hvatningar til að styrkja fagmönnun og öryggismenningu. Í tilmælum embættisins kemur fram að HVest þurfi að gera árlegt gæðauppgjör og að tryggja þurfi að til staðar sé rétt fagþekking til þess að hægt sé að viðhalda þeirri þjónustu sem sjúkrahúsið á að veita.

Embætti landlæknis mun fylgja eftir framangreindum tilmælum og ábendingum.

Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is